Innlent

Jóhanna gefur fimleikastúlkum fimm milljónir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita Fimleikasambandi Íslands fimm milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé sínu, til áframhaldandi uppbyggingarstarfs. Þetta er gert í viðurkenningarskyni fyrir glæsilegan árangur kvenna- og stúlknalandsliða Íslands á Evrópumótinu í hópfimleikum, þar sem bæði liðin unnu til gullverðlauna.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, greindi frá ákvörðun ríkisstjórnarinnar er hún ávarpaði fimleikakonurnar, þjálfara, forsvarsmenn Fimleikasambands Íslands og aðra gesti við sérstaka móttökuathöfn í dag, en hópurinn er nýkominn til landsins frá Danmörku þar sem Evrópumótið fór fram.

Jóhanna færði kvennalandsliðinu og stúlknalandsliðinu hamingjuóskir þegar sigur liðanna var í höfn og sagði árangur þeirra bera gróskunni í fimleikastarfi hér á landi fagurt vitni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×