Innlent

Skjálftinn gæti orðið af stærri gerðinni

Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir að með samfelldri vöktun megi sjá fyrir stóra skjálfta,
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir að með samfelldri vöktun megi sjá fyrir stóra skjálfta,
Skjálftahrinan út af Norðurlandi er enn í fullum gangi en með vægari kippum en í gær. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir að hrinan geti komið af stað stærri atburði og brýnt sé að taka upp strangari vöktun. Þannig megi sjá fyrir stóran skjálfta.

Fyrir norðan er fólki brugðið og þótt jarðskjálftafræðingurinn segi ekkert benda til að meira sé yfirvofandi telur hann hrinuna geta hrundið af stað atburðarás sem leiði til stórs skjálfta. Ragnar segir að Íslendingar eigi nú þegar gott jarðskjálftamælingakerfi en taka þurfi upp samfelldari og meiri vöktun og vinna verði hratt úr upplýsingunum. Hann segir að með samfelldri úrvinnslu megi sjá fyrir hvar og hvenær stór skjálfti verði, til dæmis á Skjálfandaflóa.

„Við þurfum að túlka frá degi til dags hvað sé að gerast á þessu svæði og reyna þannig að fikra okkur áfram og freista þess að sjá fyrir hugsanlegan jarðskjálfta sem gæti orðið þarna, sem væri af stærri gerðinni," segir Ragnar.

Hann ítrekar að ekkert bendi til þess að stór skjálfti sé yfirvofandi.

„En við ættum að fara búa okkur undir að það væri ekkert mjög langt í hann."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×