Glæpir í Héðinsfirði Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. október 2012 10:07 Ragnar Jónasson rithöfundur.
Eyðifjörðurinn Héðinsfjörður, mitt á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, er sögusvið fjórðu glæpasögu Ragnars Jónassonar. Bókin hefur hlotið nafnið Rof og kemur út næsta fimmtudag, en það vakti athygli fyrr í mánuðinum að bókin kom fyrst út í forsölu sem rafbók og hljóðbók. Útgáfunni verður fagnað með útgáfuteiti í Reykjavík annars vegar og í Héðinsfirði hins vegar. Árið 1955 flytja tvenn ung hjón í þennan afskekkta eyðifjörð og dvölin fær snöggan endi þegar önnur kvennanna deyr með dularfullum hætti - og hálfri öld síðar finnst gömul ljósmynd sem bendir til þess að hjónin hafi ekki verið ein í firðinum. Héðinsfjörður fór raunar í eyði árið 1951 en Ragnar tekur sér það skáldaleyfi að spinna glæpasögu í kringum þessa ímynduðu síðustu ábúendur í firðinum. Afi Ragnars og nafni, Þ. Ragnar Jónasson fræðimaður á Siglufirði, skrifaði meðal annars um sögu Héðinsfjarðar í ritröð sinni Úr Siglufjarðarbyggðum og Ragnar nýtti sér þær bækur til þess að gefa lesendum sem besta innsýn inn í lífið í þessum afskekkta firði á árum áður, en bókin er tileinkuð minningu afa hans og ömmu, Þ. Ragnars og Guðrúnar Reykdal. Spennusaga Ragnars, Snjóblinda, kom nú á dögunum út í kiljuútgáfu hjá Fischer útgáfuforlaginu í Þýskalandi, en bókin kom út í innbundinni útgáfu þar í landi fyrir ári síðan. Fischer hefur jafnframt tryggt sér réttinn á glæpasögu Ragnars, Myrknætti, sem kom út í fyrra.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Sjá meira