Barnungir gerendur í kynferðisbrotamálum líkja eftir klámefni Erla Hlynsdóttir skrifar 16. október 2012 20:30 Börn sem sjá klámefni geta farið að sýna kynferðislega hegðun, jafnvel svo alvarlega að grunur vaknar um að þau hafi verið beitt kynferðisofbeldi.
Börn sem sjá klámefni geta farið að sýna kynferðislega hegðun, jafnvel svo alvarlega að grunur vaknar um að þau hafi verið beitt kynferðisofbeldi. Inn á borð Barnahúss hafa komið mál þar sem barnungir gerendur í kynferðisbrotamálum reyna að líkja eftir klámefni. Færri komust að en vildu á ráðstefnu um klám sem haldin var í dag á vegum ráðuneyta innanríkis, velferðar og mennta og menningar, í samstarfi við lagadeild Háskóla Íslands. Þar var meðal annars fjallað um áhrif kláms á börn og unglinga, sem oft rekast jafnvel óvart á efnið á netinu. „Við sjáum að börn sem koma til okkar, kannski vegna kynferðislegrar hegðunar eða að þau hafa teiknað mjög kynferðislegar myndir, taka þátt í kynferðislegum leikjum með jafnöldrum," segir Þorbjörg Sveinsdóttir, sérfræðingur hjá Barnahúsi. Hún segir að þetta séu börn allt niður í fjögurra ára gömul og hegðunin orðin alvarlegt vandamál. „Þá koma þessi börn í könnunarviðtöl til okkar í Barnahúsi og við erum að kanna hvort þessi börn hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eða hvað það er sem veldur því að þau eru með þennan hegðunarvanda. Það sem kemur oft í ljós er að þau hafa ekki orðið fyrir kynferðisofbeldi, þessi börn sem eru með þessa miklu hegðun, heldur hafa þau séð eitthvað, í tölvunni, í sjónvarpinu." Samkvæmt tölum sem Þorbjörg tók saman fyrir Barnahús eru gerendur í kynferðisbrota í ríflega þriðjungi tilvika sjálfir börn, á aldrinum tólf til átján ára. „Þessi mál eru oft mjög alvarleg. Ungmenni með óæskilega kynferðislega hegðun gagnvart öðrum börnum, þarna sér maður oft hluti beint úr klámefni. Ég man eftir stúlku sem sagði frá því að sá sem misnotaði hana gerði alltaf það sama - nema þegar hann var búinn að sjá eitthvað nýtt í kynlífsmyndum: „Eins og að binda mig," þá gerði hann það. Þarna erum við að tala um sex ára barn og tólf ára gamalt barn. Þannig að þetta er oft gróft ofbeldi."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Sjá meira