Innlent

Tengsl milli næturvinnu og krabbameins

Karlmenn sem stunda mikla næturvinnu eru mun líklegri til að fá krabbamein en aðrir, ef marka má rannsóknarniðurstöður franskra vísindamanna.
Karlmenn sem stunda mikla næturvinnu eru mun líklegri til að fá krabbamein en aðrir, ef marka má rannsóknarniðurstöður franskra vísindamanna. MYND/GOOGLE
Karlmenn sem stunda mikla næturvinnu eru mun líklegri til að fá krabbamein en aðrir, ef marka má rannsóknarniðurstöður franskra vísindamanna.

Niðurstöðurnar voru birtar í læknisfræðitímaritinu American Journal of Epidemiology á dögunum. Rannsóknin var unnin að beiðni Armand Frappier-stofnunarinnar og Háskólans í Montreal og fjármögnuð af Health Canada og Krabbameinsstofnunar Kanada.

Svo virðist sem að tengsl séu á milli krabbameins í blöðruhálskirtli, ristli, lungum og brisi og næturvinnu. Ástæðan fyrir þessu er rakin til hormónsins melatónín sem líkaminn framleiðir í svefni. Skortur á þessum hormónum getur framkallað sem lífeðlisfræðilegar breytingar sem leiða til myndunar krabbameins.

Vísindamennirnir benda enn fremur á að lítil tengsl séu á milli þess vinnutíma sem unnin er að nóttu til og krabbameins. Fræðilega séð væri hægt að áætla að lengri vinnutími myndi auka líkurnar á þróun krabbameins en svo virðist ekki vera.

Hægt er að nálgast rannsóknina hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×