Innlent

Vatn stórhættulegt fyrir flogaveika

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Anna var í baði þegar hún lést.
Anna var í baði þegar hún lést.
Það er ekkert einsdæmi að þeir sem eru flogaveikir drukkni í vatni, segir Brynhildur Arthúrsdóttir, formaður Lauf - Félags flogaveikra. Vísir greindi frá því í morgun að hin 25 ára gamla Anna Chmielewska, móðir þriggja ára stúlku, hefði drukknað í baðkari á föstudag fyrir viku. Efnt hefur verið til styrktartónleika til þess að sambýlismaður konunnar geti sent jarðneskar leifar hennar til Póllands, en konan var þaðan. Brynhildur segir að við dauðsföll sem tengja má flogaveiki, sé það oft ekki krampinn sjálfur sem dregur fólk til dauða, heldur aðstæðurnar sem fólk er í.

„Ég á til dæmis dóttur sem er flogaveik og þetta eru einu aðstæðurnar sem ég er virkilega hrædd við, Það er þegar hún er nálægt vatni, í sturtu, baðkari eða í sundi," segir Brynhildur. Félagið hafi til dæmis útbúið armbönd sem eigi að vera í öllum sundlaugum og veggspjöld þar sem er útskýrt að sá sem gangi með armbandið geti fengið flog í sundi. „Þetta er svona íslenskt hugvit og hönnun sem er mjög þarft," segir hún.

Lauf þjónustar flogaveikisjúklinga og aðstandendur þeirra

Lauf er nokkuð virkt félag og gefur það til dæmis út blað, en nýjasta tölublað þeirra var gefið út í dag. Því er dreift á allar helstu stofnanir, leikskóla, heilsugæslustöðvar, sambýli og aðrar stofnanir. Þá fá allir hestamenn landsins blaðið því hestamenn styrktu samtökin í ár í tengslum við Landsmót hestamanna og fleira.

Þá minnir Brynhildur á að Lauf er með opna skrifstofu þar sem símtölum og tölvupóstum er svarað. Starfsmaður er við á skrifstoufutíma og tekur á móti gestum.




Tengdar fréttir

25 ára kona lést frá eiginmanni og 3ja ára gamalli dóttur

Anna Chmielewska var nýbúin að borða með þriggja ára gamalli dóttur sinni þegar hún brá sér í bað á föstudagskvöld fyrir viku. Anna, sem var flogaveik, fékk flogakast í baðinu og drukknaði. Dóttir hennar hringdi í föður sinn, Andrzej Chmielewski, eiginmann Önnu um leið og hún sá að móðir hennar hefði fengið kast og kallaði á hann að koma heim. Svona lýsir Alan Jones, vinur þeirra hjóna atburðarrásinni, í samtali við Vísi. Hann segir að Andrzej, vini sínum, líði mjög illa núna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×