Rautt frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld 21. september 2012 16:30 mynd/borgarleikhúsið
Rautt, margverðlaunað meistaraverk John Logan, verður frumsýnt á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu í kvöld, 21. september. Rautt er leikrit um einn áhrifamesta listamann tuttugustu aldarinnar, Mark Rothko, baráttu hans við sjálfan sig - eða öllu heldur við goðsögnina um sjálfan sig - og hinn eilífa ótta listamannsins við að verða úreltur. Verkið var sýnt á West end og Broadway við fádæma undirtektir þar sem leikararnir Alfred Molina og nýstirnið Eddie Redmayne fóru með hlutverk Rothko og aðstoðarmanns hans, Ken. John Logan er margreyndur leikrita og handritshöfundur, skrifaði meðal annars handrit að kvikmyndunum Gladiator, The Aviator og Hugo og er einn þriggja höfunda að handriti næstu James Bond myndar, Skyfall. Guðrún Vimundardóttir þýddi Rautt, Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir, Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónssons fara með hlutverk Rothko og Ken.Leikmynd og búninga hannar Helga I. Stefánsdóttir og lýsingu annast Björn Bergsteinn Guðmundsson.Sagan„Það er harmleikur fólginn í hverri pensilstroku“ sagði Mark Rothko um eigin verk. Hann var einn mikilvægasti málari 20. aldarinnar og tók að sér eitt stærsta verkefni listarsögunnar fyrir áður óþekkta upphæð. Þrátt fyrir þennan heiður sækja að honum efasemdir og innri átök brjótast fram í samskiptum hans við unga aðstoðarmanninn, Ken. Átökin eru ekki aðeins milli meistara og lærlings heldur fulltrúa nýrra tíma og hins helga konungs myndlistarinnar. Ólík viðhorf til lífsins takast á og um leið afhjúpast ævi aðstoðarmannsins; sorglegir atburðir fortíðar knýja dyra og átökin hafa óvæntar afleiðingar. Þótt báðir komi sárir úr því einvígi hafa þeir engu að síður unnið sigur, hvor á sinn hátt. Verkið Rautt hefur sópað til sín verðlaunum víða um heim á síðustu árum. Meðal annars hlaut það hin virtu Tony verðlaun árið 2010.Borgarleikhus.is
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira