Segir forvörnum gegn sjálfsvígum sérlega ábótavant Erla Hlynsdóttir skrifar 10. september 2012 12:12 Minningarathöfn verður haldin í Dómkirkjunni í kvöld.
Faðir pilts sem framdi sjálfsvíg þegar hann var 22ja ára segir forvörnum gegn sjálfsvígum verulega ábótavant á Íslandi. Á Íslandi fremja tveir til þrír sjálfsvíg í hverjum mánuði. Alþjóðlegur dagur tileinkaður forvörnum vegna sjálfsvíga er í dag. Talið er að í heiminum öllum verði sjálfsvíg á 40 sekúntna fresti. Á Íslandi eru að jafnaði 33 til 37 sjálfsvíg á ári. Á síðasta ári voru þau 40. Benedikt Þór Guðmundsson er meðal þeirra sem deila reynslu sinni á málþingi um sjálfsvíg í dag. „Sonur minn, Pétur, tók sitt líf árið 2006, þá 22ja ára gamall. Það náttúrulega snýst allt á hvolt í lífinu, mörg vandamál og mikið af hugsunum sem við þurfum að takast á við," segir Benedikt. Benedikt finnst forvörnum og fræðslu um sjálfsvíg vera ábótavant á Íslandi. Nei, því miður þá erum við íslendingar mjög langt á eftir hvað varðar forvarnir í sjálfsvígum, og lykillinn að forvörnum er að hafa opinskáa umræðu um þetta, því opinská umræða hún eflir bara forvarnir," segir hann. Hann segir það miður að þagnarmúr ríki í kring um þetta málefni. Klukkan þrjú verður haldið málþing í safnaðarheimili Dómkirkjunnar um sjálfsvíg. Þar koma saman aðstandendur, geðlæknar, og fólk sem hefur upplifað sjálfsvígshugsanir en komist í gegn um skaflinn. „Við viljum líka á þessum degi hvetja stjórnvöld og félagasamtök og alla einstaklinga til að efla forvarnir gegn sjálfsvígum," segir hann. Í kvöld verður síðan samverustund í Dómkirkjunni með tónlistaratriðum, og því næst verður kertum fleytt á tjörninni til minningar um látna ástvini, ef veður leyfir, og þeirra minnst sem hafa framið sjálfsvíg.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Innlent Fleiri fréttir „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Sjá meira