Ögmundur þarf að bregðast við úrskurðinum Karen Kjartansdóttir skrifar 3. september 2012 20:38
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra verður að víkja úr embætti ef dómstólar komast að sömu niðurstöðu og kærunefnd Jafnréttisstofu. Þetta segir, formaður þingflokks Vinstri grænna. Lögmaður konunnar segir að enn hafi ekki verið ákveðið hvort krefjast eigi skaðabóta, en konan hafi bæði orðið fyrir fjárhagstjóni og miska. Þann 28. ágúst úrskurðaði Kærunefnd jafnréttismála um að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hafi brotið jafnréttislög þegar hann skipaði karl í embætti sýslumannsins á Húsavík í fyrra. Sýslumenn landsins eru að miklum meirihluta karlar og ef umsækjendur eru jafnhæfir skal ráða þann af því kyni sem er í minnihluta. Þar fyrir utan þótti sýnt að kona sem sótti um væri hæfari en karlinn í fjórum hæfnisþáttum af átta og jafnhæf í þremur. Karlinn var aðeins talinn hæfari í einu atriði. Ögmundur Jónasson, hefur neitað að biðjast afsökunar vegna málsins og segist standa við ákvörðun sína.Um þetta fjallar Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna í dag. Þar segir meðal annars að einhvern veginn þurfi að bregðast við úrskurði kærunefndarinnar. Hægt væri að leita sátta, það þurfi ráðherra væntanlega að gera en með sáttaumleitan viðurkenni ráðherra í raun að hafa gengið gegn lögum við skipan í embættið. En ef sættir nást ekki er líklegast að málið komi til kasta dómstóla. Þá komi tvennt til greina. Ef dómstólar kveða upp þann dóm að ráðherra hafi gert rétt með skipan í embættið er málið þar með dautt. Ef dómur verður á annan veg verður ráðherra að mínu mati að víkja úr embætti. Áslaug Árnadóttir lögmaður konunnar segir að þær hafi beðið eftir viðbrögðum frá Ögmundi vegna málsins. Hann hafi haft samband í dag en ekki beðist afsökunar. Þær bíði ætli hins vegar bíða eftir því að frestur til að kæra úrskurð kærunefndarinnar sé liðin áður en þær taki ákvörðun um framhaldið. Ljóst sé að þær ætli ekki að kæra úrskurðinn, boltinn sé því hjá Ögmundi. Vegna umfjöllunar Stöðvar 2 í gær um ráðherra sem brotið hafa jafnréttislög vill Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dóms og kirkjumálaráðherra, taka fram að það var niðurstaða sérstakrar valnefndar að skipa Karl í Ólafsvíkurprestakall. Niðurstaða kærunefndar jafnréttismála var hins vegar sú að ráðherra beri endanlega ábyrgð á því að gætt sé réttrar málsmeðferðar við val á prestsefni og að farið sé að jafnréttislögum.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent Fleiri fréttir Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Sjá meira