Játaði að hafa fengið móður sína til að flytja kókaín til landsins 30. ágúst 2012 14:08 Sakborningar fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Kona á þrítugsaldri játaði fyrir dómara í morgun að hafa ein skipulagt stórfellt fíkniefnasmygl í lok maí síðastliðnum. Konan fékk móður sína til að flytja ferðatösku hingað til lands frá Danmörku sem innihélt rúmlega hálft kíló af kókaíni. Móðirin var stöðvuð á Keflavíkurflugvelli við hefðbundið eftirlit. Kærasti konunnar, maður á fertugsaldri, er einnig ákærður fyrir fíkniefnainnflutninginn en hann neitaði sök. Steinar Aubertsson, sem hefur verið eftirlýstur af Interpol vegna málsins, er grunaður um að hafa staðið að innflutningnum ásamt parinu. Hann verður framseldur til Íslands á næstu vikum, og verður þá líklega bætt inn í ákæruna, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Þingfesting málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Ákæran er í fjórum liðum. En auk fíkniefnainnflutningsins frá Danmörku, neitaði parið að hafa lagt á ráðin um að flytja um 350 grömm af kókaíni hingað til lands og hafa fengið par á fertugsaldri til að sækja efnin til Spánar og flytja þau til Íslands. Parið, sem flutti efnin hingað til lands, eru ákærð fyrir sinn þátt í málinu en þau mættu ekki við þingfestinguna í morgun. Þá er parið ákært fyrir að hafa fjármagnað og skipulagt innflutning á 140 grömmum af kókaíni frá Danmörku til söludreifingar í ágóðaskyni hér landi. Konan neitaði sök en maðurinn játaði að hluta, þar sem hann sagðist hafa staðið einn af innflutningnum. Kókaínið afhentu þau einstaklingi í Kaupmannahöfn í febrúar á þessu ári, en ekkert varð að innflutningnum þar sem sá einstaklingur hvarf frá verkinu. Þá er konan ákærð fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í maí á þessu ári. Við leit í bíl hennar fannst lítilræði af kókaíni og marijúanna.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira