Magnús Hlynur hættur að vinna fyrir RÚV Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. ágúst 2012 14:32 „
Það er búið að leggja mig niður frá og með morgundeginum," segir Magnús Hlynur Hreiðarsson, hinn ástsæli fréttaritari RÚV á Suðurlandi í samtali við Vísi. Honum var tilkynnt í morgun að RÚV óskaði ekki lengur eftir starfskröftum hans. Skýringin var sparnaður hjá fréttastofunni. „Þetta er náttúrlega bara svakalega svekkjandi og leiðinlegt . Ég er búinn að vera oft með mikið af jákvæðum sunnlenskum sveitafréttum sem hafa virkað vel og landsmenn hafa viljað horfa á," segir Magnús Hlynur. Hann sér heldur ekki sparnaðinn í uppsögninni því að nú þurfi að senda lið frá Reykjavík yfir heiðina til að fjalla um mál á Suðurlandi. Magnús Hlynur er þó ekki alveg af baki dottinn. „Ég er ritstjóri Dagskrárinnar og með vef þess blaðs. Ég held því áfram en vonast til að eiitthvað nýtt opnist því þetta er það sem mestan áhuga á, eitthvað í þessum dúr," segir Magnús Hlynur. „Ég vona náttúrlega líka að forsvarsmenn RÚV endurskoði ákvörðun sína. af því að ég er tilbúinn í slaginn og vill halda áfram," bætir hann við. „Ég veit ekki betur en að það hafi verið almenn ánægja með mín störf og svo fær maður bara svona í hausinn eins og blauta tusku," segir hann að lokum. Í samtali við Eirík Jónsson blaðamann segir Magnús Hlynur að hann hafi verið með verktakasamning við fréttastofunna. Meðfylgjandi má sjá kynningarmyndskeið sem Magnús Hlynur gerði með völdum fréttum af ferli sínum. Smelltu á hnappinn „Horfa á myndskeið með frétt“.
Mest lesið 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Erlent „Hann stal henni“ Erlent Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Innlent Pokrovsk riðar til falls Erlent Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Innlent Veðurspáin fyrir helgina að skána Innlent Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Innlent Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Innlent Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir Erlent Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Skýrsla Guðlaugs Þórs frá 2018: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið“ Veðurspáin fyrir helgina að skána FJallabaksleið syðri lokuð vegna vatnavaxta Engin nóróveira í Laugarvatni Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Reyndi að skemma bíl og hljóp svo undan lögreglu Brennisteinsdíoxíð gæti borist um suðvesturhornið Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Fundu týnda brú við Suðurlandsbraut Engin framlög til jarðganga en óljós áform um innviðafélag Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ökumaður stöðvaður og kærður fyrir fjölmörg umferðalagabrot Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Versta sviðsmyndin, galið greiðslumat og óvæntur fundur Fimm prósent fallið fyrir ástarsvikum Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Engin fjármögnun gereyðingarvopna á Íslandi Enn varað við svikapóstum: „Við hlökkum til að fá jákvæða svörun frá þér“ Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Sjá meira