Kvaddi lesgleraugun glöð í bragði Hugrún Halldórsdóttir skrifar 31. ágúst 2012 20:30
Kona um fimmtugt kvaddi lesgleraugun sín í dag, glöð í bragði, og varð þar með fimmtándi Íslendingurinn til að gangast undir nýja lasermeðferð sem leiðréttir aldursbundna fjarsýni. Augnlæknir gerir ráð fyrir að mun fleiri eigi eftir að feta í þessi sömu fótspor. Hildur Harðardóttir fór að finna fyrir svokallaðri ellifjarsýni fyrir um áratug og byrjaði þá að nota gleraugu þar sem linsur komu ekki til greina. „Leiðinlegt að hafa gleraugu, erfitt, óþægilegt, þau trufla mig," lýsir Hildur. Og þá sérstaklega á hlaupum og í golfi. „Þau hristast og það eru átök. Ég hef verið að spila gleraugnalaus, get ekki spilað með linsur, þannig að ég sé ekkert hvað ég er að gera," segir hún hlæjandi. Fjorgjöf Hildar á væntanlega eftir að lækka innan tíðar þar sem hún gekkst síðdegis í dag undir svokallaða Presbymax-meðferð til að leiðrétta þessa aldursbundnu fjarsýni. Tæknin hefur ekki verið í boði hér á landi áður þrátt fyrir að hafa þekkst erlendis um nokkurra ára skeið. „Þá er útbúinn lespunktur á hornhimnuna í aðgerðinni. Þá getur fólk bæði séð nálægt sér og langt frá sér. Heilinn lærir að horfa í gegnum mismunandi hluta hornhimnunnar. Þetta er mögnuð útfærsla á laser-aðgerðinni og hefur gefist mjög vel," segir Jóhannes Kári Kristinsson, augnlæknir Augljóss. Meðferðin kostar 380 þúsund með árs eftirfylgni og er ætluð fólki á aldrinum 45-60 ára. „Það eru kannski ca. 30 til 40% af þeim sem koma í forskoðun sem væru kandídatar í þessa aðgerð," útskýrir Jóhannes Kári. „Þetta hefur verið kallaður hinn heilagur kaleikur augnlækninganna vegna þess að það hefur verið mikil eftirspurn, mikið af fólki sem hefur verið að spyrja hvort þetta sé ekki á leiðinni, hvort þetta sé ekki að koma, lausn á lesgleraugunum. Ég hugsa að þetta verði mjög vinsælt," segir Jóhannes Kári. Hildur má svo búast við að undrin fari að gerast strax í kvöld en við fáum að vita allt um það á morgun þegar við hittum hana og Jóhannes Kára í fyrstu eftirskoðun.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Sjá meira