Innlent

Má ekki tala um ESB af léttúð

Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar
Katrín Jakobsdóttir er varaformaður VG.
Katrín Jakobsdóttir er varaformaður VG.
Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri Grænna segir að flokksmenn megi ekki ráðast á hvert annað vegna ESB málsins. Hún segist ekki tala um málið af léttúð og flokksmenn þurfi að horfa á málefnið frekar en einstaklinga og persónur.

Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra Vinstri grænna sakaði Katrínu Jakobsdóttur varaformann flokksins um að ráðast ómaklega að andstæðingum ESB aðildar í fréttum okkar í gær. Þá sagði hann forystuna ganga geng grunnstefnu flokksins. Katrín er ekki sammála þesusm orðum Jóns.

„Það sem ég gerði í ræðu minni á flokksráðsfundinum var það að ég var að greina svona ólíkar skoðanir innan Vinstri Grænna og það sem líka kom fram í þeirri ræðu var að flestir eru andstæðingar þess að Ísland gangi í ESB, hins vegar er það annað mál hvort fólk lítur á það sem aðal mál eða eitt af mörgum málum sem þessi f lokkur snýst um og ég sé enga ástæðu til þess út frá þessarri greiningu að fólk sé að taka það eitthvað sérstaklega til sín," segir Katrín.



Hún segir að þótt flokksmenn séu flestir sammála um andstöðu við ESB málið sé mikilvægt að þeir nái saman um hana en séu ekki að ráðast hvert á annað. Þá segist hún taka ESB málin mjög alvarlega eins og önnur stefnumál flokksins en ekki af léttúð eins og Jón Bjarnason sagði í gær.

Katrín segir að ef menn ætli að ná samstöðu fyrir kosningar, megi þeir ekki tala um það af léttúð. „Horfum á málefnið, en ekki endilega einstaklinga eða persónur og áttum okkur á því að stefna flokksins byggir á þessum fjórum stofum og það er ekki hægt að segja að einhver einn sé handhafi þeirrar stefnu en annar," segir Katrín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×