Borguðu 50 evrur þrátt fyrir handtöku 29. ágúst 2012 12:26 "Ég fékk bara hnút í magann yfir því að ég væri með menn sem stæðu í ólöglegum innflutningi,“ sagði leigubílstjóri á áttræðisaldri sem kom fyrir dómara í morgun í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl hingað til lands í apríl síðastliðnum. mynd/vilhelm „
Ég fékk bara hnút í magann yfir því að ég væri með menn sem stæðu í ólöglegum innflutningi," sagði leigubílstjóri á áttræðisaldri sem kom fyrir dómara í morgun í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl hingað til lands í apríl síðastliðnum. Þrír menn eru ákærðir fyrir fíkniefnasmygl á 8,5 kílóum af amfetamíni. Tveir af þeim voru stöðvaðir í leigubíl sem þeir tóku á Keflavíkurflugvelli. Þegar þeir settust upp í bílinn sögðust þeir ætla að fara á Grand hótel í Reykjavík. Tollverðir hringdu í leigubílstjórann vegna þess að grunur lék að þeir væru með fíkniefni í fórum sínum. Félagi þeirra, sem kom með þeim til landsins, var handtekinn á Keflavíkurflugvelli stuttu áður. Leigubílstjórinn sagði fyrir dómara í morgun að mennirnir hefðu verið í símanum á leiðinni. Á miðri leið hafi annar þeirra beðið um að vera ekið upp í Breiðholt fyrst. Leigubílstjórinn gagnrýndi lögregluna í vitnisburði sínum. Upphaflega hafi lögreglumaður beðið hann að keyra niður á lögreglunastöðina á Hverfisgötu en hann hafi neitað því. Honum hafi fundist óþægilegt að vera hluti af þessari atburðarás. Þá hafi lögreglumenn hefðu hringt stanslaust í sig til að fá upplýsingar hvar bíllinn væri staddur. Í samtali við blaðamann fyrir utan dóminn sagði hann að framkoma lögreglunnar væri með ólíkindum. „Þeir vissu alveg hvaða leið ég var að fara, það var algjör óþarfi að hringja svona oft í mig." Bílstjórinn fór fram á það við dómara að mennirnir færu úr dómsal á meðan hann gaf vitni. Við því var orðið. Þá sagði leigubílstjórinn að þegar lögreglan hafi stöðvað leigubílinn hafi annar maðurinn verið tekinn út úr bílnum og færður í lögreglubifreið. En hinn hafi setið eftir í sæti sínu og lögreglumaður hafi staðið við hurðina. Farsími mannsins, sem var ennþá í bílnum, hafi hringt og hann hafi spurt lögregluna hvort hann mætti svara.Lögreglumaðurinn hafi játað því. Þá hafi leigubílstjórinn spurt lögreglumanninn hvort honum findist í lagi að hann svaraði í símann til að segja frá því að þeir hefðu verið handteknir. Þá hafi lögreglumaðurinn kveikt á perunni og sagt manninum að skella á. Verjandi eins mannanna spurði leigubílstjórann hvort þeir hafi borgað fyrir ferðina og sagði hann svo vera. Þeir hefðu greitt um 50 evrur fyrir ferðina - eftir að þeir höfðu verið handteknir.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira