Guðmundur: Þessi varnarleikur er okkar uppfinning Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 2. ágúst 2012 22:59 Mynd/Valli „
Ég er mjög stoltur af liðinu. Þetta var frábær leikur og frábær frammistaða hjá strákunum," sagði sigurreifur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari eftir frækinn sigur Íslands á Svíþjóð í kvöld, 33-32. „Þetta var erfiður leikur gegn frábæru liði. Þeir ætluðu að taka okkur með því að spila mjög hratt á okkur í byrjun og við fengum nokkur mörk á okkur eftir hraða miðju í upphafi leiksins. En við náðum að loka fyrir það og standa vörnina vel, auk þess sem að markvarslan var mjög góð í fyrri hálfleik og hraðaupphlaupin frábær. Sóknarleikurinn var líka frábær." „Svo náðum við að byrja vel í seinni hálfleik og komast í góða stöðu. En svo misstum við þetta niður í lokin og höfðu ýmsir samverkandi þættir áhrif á það. Við fengum mjög lítinn tíma í sóknunum okkar og vorum þess fyrir utan mjög oft manni færri sem gerði málin mjög erfið fyrir okkur. Þá gengu þeir á lagið." Hann segir oft erfitt að lesa þær línur sem dómarar leggja í leikjunum. „Því miður er þetta þannig að dómararnir sá einhverja hluti sem við sjáum ekki. Stundum virðist það tilviljunarkennt hvernig dómarnir falla," sagði hann. Varnarleikur íslenska liðsins var á köflum gríðarlega góður og lagði í raun grunninn að þessum sigri. Það er einmitt þannig sem Guðmundur vill hafa það. „Þetta er íslenska vörnin og okkar uppfinning. Við spilum þetta varnarafbrigði öðruvísi en flestir aðrir og erum stoltir af því. Við erum búnir að byggja upp þessa vörn og viðhalda henni í fjögur ár. Það hefur ekki heldur verið auðvelt að fá hana í gang vegna þess að leikmenn spila svo allt aðra varnartaktík hjá sínum félagsliðum." „Það hefur því verið ögrandi verkefni að fá þessa vörn til að virka og núna finnst mér hún vera komin í gang." Alexander Petersson fiskaði mikilvægan ruðning á Dalibor Doder þegar tæp mínúta var eftir af leiknum og það fór langt með að tryggja sigur Íslands í leiknum. „Það var stórkostlegur varnarleikur hjá Alex. Hann hefur áður sýnt okkur að hann býr yfir fágætum eiginleikum. Hann stöðvaði þetta hraðaupphlaup á stórkostlegan hátt. En allt liðið spilaði vel í kvöld. Aron var frábær, Guðjón Valur skoraði mikilvæg mörk og markið sem Ásgeir skoraði í lokin tryggði sigurinn. Það voru meistarataktar."
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira