Handbolti

Arnór fékk jákvæð svör | Snorri enn bólginn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Arnór Atlason er ekki alvarlega meiddur en það er niðurstaða myndatöku og læknisskoðunar sem hann fór í vegna hnémeiðsla sinna í gær.

Að sögn Einars Þorvarðarsonar, framkvæmdarstjóra, verður Arnór með gegn Frökkum í dag en það verði svo að koma í ljós hversu mikið hann getur spilað.

Arnór meiddist í leiknum gegn Svíþjóð í fyrrakvöld og gat ekki klárað leikinn. Ísland vann leikinn naumlega, 33-32, eftir að hafa náð mest sjö marka forsytu í seinni hálfleik.

Snorri Steinn Guðjónsson er enn að glíma við sinaskeiðabólgu en hann hefur engu að síður komið við sögu í öllum leikjum Íslands til þessa á mótinu.

„Það gengur reyndar svolítið hægt hjá honum að fá fullan bata og eru hann enn með bólgur. En við erum að vona að hann geti farið að koma inn í þetta af fullum krafti með okkur," sagði Einar við Vísi í morgun.

Ísland mætir Frakklandi klukkan 18.30 í kvöld og verður leiknum lýst á Boltavakt Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×