Handbolti

Norsku stelpurnar í undanúrslit - sex mörkum undir í seinni en unnu samt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Hergeirsson.
Þórir Hergeirsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þórir Hergeirsson stýrði norska kvennalandsliðinu inn í undanúrslitin á Ólympíuleikunum í London í dag þegar norska liðið vann tveggja marka sigur á Brasilíu, 21-19, í átta liða úrslitum handboltakeppni leikanna.

Þetta leit ekki vel út fyrir norska liðið þegar þær voru sex mörkum undir, 9-15, þegar þrjár mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum.

Þórir setti Kari Aalvik Grimsbö í markið og hún hreinlega lokaði markinu. Grimsbö varði 14 af 22 skotum sem hún reyndi við eða 64 prósent skotanna. Norska liðið vann síðustu 27 mínútur leiksins 12-4 og tryggði sér sæti í undanúrslitunum.

Linn-Kristin Riegelhuth Koren var markahæst í norska liðinu með fimm mörk en fáir léku betur en Karoline Dyhre Breivang sem leiddi sitt lið áfram með sönnum sigurvilja.

Norska kvennalandsliðið spilar því enn á ný um verðlaun á stórmótum en liðið er ríkjandi Heims- Evrópu og Ólympíumeistari.

Þórir hefur þegar gert norska liðið að Heims- og Evrópumeisturum og á því möguleika á ná þrennunni fyrstur íslenskra þjálfara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×