Guðjón Valur: Ungverjar með hörkuvörn Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 8. ágúst 2012 06:00 Mynd/Valli
Ísland mætir í dag liði Ungverjaland í gríðarlega mikilvægum leik á Ólympíuleikunum í London. Sigurliðið fer áfram í undanúrslit og fær þar með tækifæri til að spila um verðlaun en liðið sem tapar er úr leik. „Þetta er leikurinn. Við erum búnir að vera með þessa dagsetningu í kollinum síðan að leikjafyrirkomulagið var gefið út," sagði Guðjón Valur við Vísi. Ungverjar töpuðu þremur af fimm leikjum sínum í B-riðli en stóð þó í Evrópumeisturum Danmerkur lengi vel og fékk á sig fá mörk í flestum leikjum. „Maður sér á tölunum í þeirra leikjum að þetta er lið sem er með hörkuvörn og góðan markvörð. Aðeins Spánverjarnir náðu að setja meira en 26 mörk á þá." „Ungverjarnir náð að halda andstæðingnum niðri og það þýðir að við þurfum að fá vörnina í gang og hraðaupphlaupin með. Það virðist nefnilega mjög erfitt að spila gegn þessari vörn enda eru þeir mjög hávaxnir og líkamlega sterkir." Strákarnir sýndu þó í riðlakeppninni, sér í lagi gegn Frökkum, að þeir eiga svar við sterkum varnarleik. Þess fyrir utan unnu strákarnir sigur á Ungverjum bæði á EM í janúar síðastliðnum og á HM í Svíþjóð í fyrra. „Okkur tókst þá að spila hratt á þá og hreyfa menn úr stöðunum sínum. Ef okkur tekst að gera það aftur þá eigum við góðan séns." „En þó svo að við séum nú að spila við liðið sem varð í fjórða sæti í hinum riðlunum þá verður að hafa í huga að það var mjög mikill munur á riðlunum. Það sést best á því að Serbía - silfurliðið frá EM - komst ekki áfram. Ég á því von á hörkuleik."
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira