Handbolti

Frakkar í undanúrslit á dramatískan hátt - Accambray með sigurmarkið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
William Accambray átti frábæra innkomu inn í franska liðið.
William Accambray átti frábæra innkomu inn í franska liðið. Mynd/Nordic Photos/Getty
William Accambray var hetja Frakka í dramatískum 23-22 sigri á Spánverjum í átta liða úrslitum handboltakeppni Ólympíuleikanna. Accambray, sem kom inn í franska liðið fyrir leikinn eftir að hafa verið utan hóps í riðlakeppninni, skoraði sigurmarkið og var markahæsti leikmaður franska liðsins með sjö mörk.

Spánverjar byrjuðu mun betur, skoruðu þrjú fyrstu mörkin, komust í 6-1 og voru 12-9 yfir í hálfleik. Frakkar skoruðu sex mörk í röð um miðjan seinni hálfleik og breyttu stöðunni úr 17-14 í 17-20 en William Accambray skorað fjögur af þessum sex mörkum.

Spánverjar náðu að jafna metin í 22-22 þegar tvær og hálf mínúta var eftir en Accambray skoraði sigurmarkið á lokasekúndunni eftir að hafa náð frákasti þegar skot Nikola Karabatic var varið.

William Accambray skoraði 7 mörk úr 9 skotum og Cédric Sorhaindo var með 4 mörk. Julen Aguinagalde skoraði mest fyrir Spán eða 5 mörk.

Frakkar mæta annaðhvort Króatíu eða Túnis í undanúrslitunum en sá leikur fer fram seinna í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×