Guðjón Valur um gjaldþrot AGK: Ég er í sjokki Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 31. júlí 2012 10:41 Guðjón Valur á flugi í morgun. Mynd/Valli
Guðjón Valur Sigurðsson segir það vitaskuld afar slæmar fréttirnar sem bárust af gjaldþroti danska handboltafélagsins AGK nú í morgunsárið. Félagið lýsti sig gjaldþrota í morgun og var það staðfest á heimasíðu liðsins af Jesper Nielsen, fyrrum eiganda liðsins. Tilkynningin kom á meðan leik Íslands og Túnis stóð á Ólympíuleikunum í morgun og því hafði Guðjón Valur, sem lék með liðinu í vetur, ekki heyrt tíðindin þegar blaðamaður ræddi við hann. „Ég er í sjokki," sagði hann og virtist vart ætla að trúa þessu. „Þetta er skemmtilegasta ár sem ég hef átt í handboltanum og þarna eru margir frábærir handboltamenn. Ég er gáttaður og veit ekki hvað ég á að segja." Guðjón Valur er nú genginn til liðs við Kiel í Þýskalandi eftir ársdvöl í Danmörku. AG varð tvöfaldur meistari þar í landi annað árið í röð og komst í Final Four í Meistaradeild Evrópu. Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason voru samningsbundnir félaginu og Ólafur Stefánsson lék einnig með því í vetur en hann hafði ekki gert nýjan samning við liðið. Snorri Steinn vildi ekki tjá sig um málið í samtali við Vísi eftir leikinn og þeir Arnór og Ólafur báðust undan viðtali. „Það er mjög leiðinlegt að þetta verkefni skuli ekki hafa gengið eftir því það er all til alls þarna," sagði Guðjón Valur. „Það er leiðinlegt ef menn hafa spennt bogann of hátt. Dönsku leikmennirnir þarna eru algjörar goðsagnir og með bestu karakterum sem ég hef kynnst á ferlinum." „Þetta tekur mig mjög sárt og er afar leiðinlegt að heyra."
Tengdar fréttir Umfjöllun: Túnis - Ísland 22-32 | Túnisar kláraðir á mettíma Íslenska karlalandsliðið í handbolta átti ekki í vandræðum með að leggja Túnis að velli á Ólympíuleikunum í London í morgun. Ísland var með mikla yfirburði og staðan var 19-8 í hálfleik. Lokatölur 32-22. 31. júlí 2012 00:01 AGK, lið Ólafs Stefánssonar, er gjaldþrota AGK, handboltaliðið sem Ólafur Stefánsson og fleiri Íslendingar leika með í Kaupmannahöfn, er gjaldþrota. 31. júlí 2012 09:26 Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira
Umfjöllun: Túnis - Ísland 22-32 | Túnisar kláraðir á mettíma Íslenska karlalandsliðið í handbolta átti ekki í vandræðum með að leggja Túnis að velli á Ólympíuleikunum í London í morgun. Ísland var með mikla yfirburði og staðan var 19-8 í hálfleik. Lokatölur 32-22. 31. júlí 2012 00:01
AGK, lið Ólafs Stefánssonar, er gjaldþrota AGK, handboltaliðið sem Ólafur Stefánsson og fleiri Íslendingar leika með í Kaupmannahöfn, er gjaldþrota. 31. júlí 2012 09:26