Handbolti

Guðmundur: Ég fékk gæsahúð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
„Það kom fyrir að ég fékk gæsahúð yfir frammistöðu liðsins," sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson eftir frábæran sigur Íslands á liði Túnis á Ólympíuleikunum í morgun, 32-22.

„Þetta var stórkostlegt. Fyrri hálfleikurinn er með því betra sem ég hef séð hjá þessu liði," sagði Guðmundur.

„Fyrri hálfleikur skóp sigurinn. Liðsheildin í vörn og sókn var mjög sterk auk þess sem að markvarslan var mjög fín. Við gáfum svo aðeins eftir í seinni hálfleik enda ósjálfsbrögð viðbrögð að menn fara að hugsa um næsta leik þegar liðið er komið fimmtán mörkum yfir."

„En að ná tíu marka sigri er frábært og ekki eitthvað sem reiknuðum með fyrirfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×