Handbolti

Strákarnir okkar komnir til London

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Valli
Íslenska handboltalandsliðið er komið til London þar sem liðið tekur þátt í handboltakeppni Ólympíuleikanna. Fyrsti leikur liðsins er á móti Argentínu á sunnudagsmorguninn.

Íslensku strákarnir unnu silfur á síðustu leikum og ætla sér langt á leikunum í London. Þetta eru þriðju Ólympíuleikar íslenska liðsins í röð því liðið var einnig með í Aþenu 2004 þar sem liðið endaði í 9. sæti.

Á meðfylgjandi mynd má sjá strákana bíða eftir töskunum á Heathrow-flugvelli í dag en framundan er síðan að koma sér fyrir í Ólympíuþorpinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×