Almenningur sniðgangi verslunarkeðjur í nafni tjáningarfrelsis BBI skrifar 19. júlí 2012 11:37 Krónan er ein þeirra verslana sem neytendur eru hvattir til að sniðganga.
Á nýlegri síðu er almenningur hvattur til að sniðganga verslanirnar Krónuna, Nóatún, Elko og Byko sem eru í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, sem m.a. rekur Kaupás. Ástæðan er sú að á sínum tíma var tímaritið Ísafold tekið úr sölu í verslunum Kaupáss eftir að það fjallaði um skemmtistaðinn Goldfinger.Síðan leit dagsins ljós eftir að dómar Mannréttindadómstóls Evrópu féllu í síðustu viku þar sem íslenska ríkið var talið hafa brotið mannréttindi á tveimur blaðakonum sem fjölluðu um nektardansstaði. Á síðunni er sagt að gjörsemlega óþolandi sé að auðmenn og stórfyrirtæki og verslunarkeðjur beiti fjölmiðla, blaðamenn eða tímarit kúgun af því tagi að taka blöð úr birtingu ef þar er fjallað um þjóðfélagsmál með gagnrýnum hætti. Á síðunni eru því gerðir skórnir að blaðið hafi verið tekið úr sölu því „Kópavogsbúinn Jón Helgi kærði sig ekki um að fjallað væri um aðra „fína menn" í Kópavogi, Geira í Goldfinger og bæjarstjóra Kópavogs, Gunnar Birgisson." Hildur Lilliendahl, Ingólfur Gíslason, Jón Örn Loðmfjörð, Guðrún Elsa Bragadóttir og Margrét Helga Sesseljudóttir standa fyrir síðunni og markmiðið er helst það að koma í veg fyrir að svona nokkuð endurtaki sig og vekja fólk til meðvitundar um það. Síðan er hýst á vefmiðlinum skjabjort.is sem er nýtt vefrit undir stjórn sama fólks. Yfirlýst markmið með síðunni er að stuðla að samfélagsbreytingum í átt að frelsi, jöfnuði og systralagi allra manneskja í ljósi feminískrar greiningar á ríkjandi samfélagsskipan. Ekki náðist í Jón Helga Guðmundsson við vinnslu fréttarinnar og aðrir starfsmenn Kaupáss vildu ekki tjá sig um málið.Athugasemd kl. 14:00. Tvö nöfn voru rangt stafsett þegar greinin birtist fyrst. Vísir biðst velvirðingar á því.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Sjá meira