Íslenski boltinn

KR-ingar unnu þúsundasta leikinn í efstu deild - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Valli
KR-ingar héldu upp á þúsundasta leikinn í efstu deild í kvöld með því að vinna 1-0 sigur á nárgrönnunum í Val á Vodafone-vellinum að Hlíðarenda. KR-liðið er þar með búið að gera betur en í fyrra þegar liðið náði ekki að vinna Valsmenn í tveimur deildarleikjum liðanna.

KR-ingar héldu líka hreinu í fyrsta sinn í sumar í þessum leik og annar sigur liðsins í röð skilaði Vesturbæjarliðinu upp í þriðja sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Skagamanna.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik Vals og KR á Vodafone-vellinum í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×