Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR-FH 2-0 Óskar Ófeigur Jónsson á KR-velli skrifar 23. maí 2012 12:48 Mynd/Daníel
KR-ingar eru komnir upp að hlið FH-inga í 2. sæti Pepsi-deildar karla eftir 2-0 sigur á FH í fyrsta leik fimmtu umferðar á KR-vellinum í kvöld. FH var búið að vinna þrjá leiki í röð og átti möguleika á því að komast í toppsætið en Hafnfirðingar komust lítið áleiðis gegn KR-ingum í Vesturbænum í kvöld. Baldur Sigurðsson kom KR í 1-0 á 10. mínútu eftir flottan undirbúning Viktors Bjarka Arnarssonar og Kjartan Henry skoraði seinna markið á 63. mínútu þó að svo gæti nú farið að það mark verði skráð sem sjálfsmark. KR-ingar áttu flottan leik í kvöld og þá sérstaklega varnarlega enda komust FH-ingar lítið áleiðis. Það var ekki fyrr en undir lokin sem FH-ingar náðu ógna aðeins Hannesi í markinu en það kom of seint og þriðja sigur KR-inga er í höfn. Taktík KR-liðsins gekk mjög vel í þessum leik. Hápressan kom FH-ingum úr jafnvægi í upphafi leiks og eftir að þeir skoruðu snemma gátu þeir dottið aftar og loka svæðum fyrir FH-liðið. KR-ingar lokuðu flestum leiðum fyrir FH-inga á miðjunni og þjálfarinn Rúnar Kristinsson er augljóslega búinn að taka varnarleik liðsins í gegn frá því í upphafi móts. KR-ingar nýttu sér óöryggi í FH-vörninni í upphafi leiks og héldu góðri pressu á varnarlínu FH-inga sem gekk frá fyrstu mínútu illa að finna miðjumenn liðsins. KR-liðið komst síðan í 1-0 eftir aðeins tíu mínútna leik þegar Baldur Sigurðsson skoraði með hnitmiðaðu skoti frá vítateig. Guðmundur Reynir Gunnarsson hóf sóknina með frábæru hlaupi upp vinstri vænginn en það var ekki fyrr en eftir fyrirgjöf Kjartan Henrys Finnbogason sem Viktor Bjarki Arnarsson lagði boltann út á Baldur. KR-ingar voru í stórsókn næstu mínútur á eftir að þeir skoruðu og bæði Þorsteinn Már Ragnarsson og Baldur Sigurðsson fengu mjög góð færi á næstu þremur mínútum. FH-ingar lifnuðu aðeins við um miðjan hálfleikinn en tókst hvorki að ná tökum á miðjunni né skapa sér alvöru færi. KR-ingar voru í fínum gír það sem eftir var hálfleiksins, marki yfir og gekk vel að loka svæðum fyrir FH-inga. Baldur Sigurðsson fór fyrir pressunni sem gerði FH-miðjunni nær ómögulegt að komast inn í leikinn. FH-ingum gekk betur að halda boltanum í seinni hálfleiknum en tókst lítið að skapa sér af færum. FH-ingar vildu fá vítaspyrnu eftir klukkutíma leik þegar boltinn virtist fara í hendi Guðmundar Reynis Gunnarssonar en ekkrt var dæmt og í staðinn bætti Kjartan Henry Finnbogason við marki skömmu síðar eftir aðra stoðsendingu frá Viktori Bjarka. KR-ingar voru komnir í lykilstöðu, 2-0 yfir og róðurinn var orðinn mjög þungur fyrir Hafnfirðinga. Það lifnaði aðeins yfir FH-liðinu þegar Hólmar Örn Rúnarsson kom inn á miðjuna en FH-liðið náði ekki almennilegri pressu fyrr en undir lok leiks. FH-ingar fengu nokkur flott færi á lokakafla leiksins en KR-vörnin hélt út og mikilvægur sigur liðsins var í höfn. Baldur: Vorum búnir að pæla mikið í því hvernig þeir spiluðumynd/daníelBaldur Sigurðsson átti flottan leik með KR í kvöld og skoraði fyrra mark leiksins strax á tíundu mínútu. Baldur var lykilmaður í varnarpressu KR-liðsins sem gekk vel upp í þessum leik. „Uppleggið á þjálfurunum er lykillinn á bak við þennan sigur. Þeir eiga heiður skilinn fyrir það hvernig þeir settu upp þennan leik. Við vorum búnir að pæla mikið í því hvernig þeir spiluðu," sagði Baldur. „Við settum það upp að byrja á hápressu í fyrstu tíu til fimmtán mínúturnar en fara svo í skotgrafirnar. Það hefði ekki skipt máli hvort við settum mark eða ekki en það var ekki verra að vera búinn að skora," sagði Baldur. „Við ætluðum að koma þeim í smá vandræði fyrst og svo vorum við með ákveðnar færslur í vörninni. Ef þú verst vel og hefur sjálfstraust á boltanum þá skorar þú yfirleitt og færð fá mörk á þig," sagði Baldur en KR-liðið hefur tekið vörnina í gegn eftir að hafa fengið á sig mörg mörk í upphafi móts. „Varnarleikurinn hefur að okkar mati verið góður en einstaklingsmistök hafa verið að kosta okkur stigin. Við erum með það góða menn, að menn laga bara það og þá smellur þetta," sagði Baldur en hann var að opna markareikning sinn í kvöld.. „Fyrsta markið er komið og vonandi verða þau fleiri," sagði Baldur að lokum. Atli Viðar: Mjög svekktur að fá ekkert út úr þessum leikmynd/daníel„Við erum vægast sagt svekktir með þessi úrslit. Við skoruðu ekki mörk og fengum á okkur tiltölulega ódýr mörk að mér fannst. Þetta voru bara grunnatriði, við nýtum ekki okkar færi en þeir nýta tvö af sínum færum," sagði FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson sem var einna frískastur í framlínu FH í kvöld. „Fyrri hálfleikurinn var ekki alveg nógu góður hjá okkur en ég upplifði það í seinni hálfleik að það væri bara eitt lið á vellinum og við fengum síðan hræðilegt mark á okkur í andlitið," sagði Atli Viðar. „Markið þeirra á tíundu mínútu slær okkur dálítið út af laginu en mér fannst við koma þokkalega til baka og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Ég er bara mjög svekktur að fá ekkert út úr þessum leik," sagði Atli. „Við erum að spila á KR-velli sem hefur löngum verið talinn ansi erfiður að heimsækja. Það má alveg búast við því að það tapist stig á leiðinni en við erum ekkert hættir," sagði Atli Viðar að lokum. Rúnar: Menn hafa verið duglegir í síðustu leikjummynd/daníel„Við höfum lagað varnarleik liðsins í heild sinni og það er góðs viti að við séum farnir að halda búrinu hreinu," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir 2-0 sigur á FH. KR fékk á sig sjö mörk í fyrstu þremur leikjunum en hefur nú haldið hreinu í tveimur leikjum í röð. „Við vitum að FH er með frábært lið því við lentum í gríðarlegum vandræðum með þá í meistarakeppninni þar sem að þeir yfirspiluðu okkur á löngum köflum. Við vorum aðeins viðbúnir því hvernig þeir ætluðu að spila," sagði Rúnar. „Ég tel okkur hafa náð að loka ágætlega á þá. Við byrjuðum leikinn mjög vel, pressuðum þá hátt og uppskárum mark eftir fína sókn og mikla pressu. Eftir það lögðumst við aðeins til baka og leyfðum þeim að koma á meðan við lokuðum svæðum. Það gekk svona allt í lagi en þegar leið á þá gekk það betur og betur. Þeir náðu ekki að opna okkur neitt gríðarlega mikið," sagði Rúnar. „Ég vona það að við séum komnir í gírinn en maður getur aldrei vitað með það. Okkur líður ágætlega eins og er, erum að leika ágætlega og bæta okkar leik. Menn eru að vinna, hlaupa og berjast fyrir liðið og það er mjög mikilvægt að leikmenn skili þeirri vinnu til að árangur náist. Menn hafa verið duglegir í síðustu leikjum," sagði Rúnar. Baldur Sigurðsson átti góðan leik í kvöld og náði að skora sitt fyrsta mark í sumar. „Það var frábært fyrir Baldur að skora. Hann skorar yfirleitt ekkert fyrr en í sjöttu eða sjöundu umferð þannig að það var gott að markið kom núna. Hann er þá búinn að opna markareikninginn og það er ánægjulegt að það séu fleiri að skora en Kjartan," sagði Rúnar. „Þetta hraðmót hefur skilað okkur þokkalega mörgum stigum og við förum bjartir inn í smá frí núna. Við reynum að æfa vel og koma okkur í gott stand þegar við mætum Fram á Laugardalsvellinum í næstu umferð," sagði Rúnar. Heimir: Slakasti leikurinn okkar í sumarmynd/daníel„Mér fannst KR-ingarnir vera sterkari en við í þessum leik. Við byrjuðum leikinn ágætlega en eftir að við lentum undir þá voru KR-ingarnir sterkari. Við spyrntum aðeins við fótum síðustu tíu til fimmtán mínúturnar en heilt yfir þá held ég að við getum ekki kvartað mikið yfir þessum úrslitum þó að þau séu auðvitað vonbrigði," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, hreinskilinn eftir leik. „Það var ekkert í leik KR sem kom okkur á óvart. Við vorum ekki nógu klókir að nýta okkur það sem bauðst og spiluðum ekki nógu vel. Við vorum að missa boltann á slæmum stöðum á vellinum eftir lélegar sendingar. Það er ekki spurning að þetta var slakasti leikurinn okkar í sumar," sagði Heimir. „Við komnir oft í ágæta stöðu en reyndum að fara upp í gegnum miðjuna í staðinn fyrir það að fara út á vængina og blanda þessu saman. Þeir voru þéttir inn á miðjunni og það var lítið pláss þar til að fara í gegn. Af einhverjum ástæðum ákváðum við að fara þar sem þeir væru flestir," sagði Heimir. „Við þurfum að jafna okkur eftir þennan leik. Það kemur tíu daga pása og síðan er erfiður leikur við Fylki. Við þurfum bara að fara undirbúa okkur undir það," sagði Heimir. Hann vildi lítið tjá sig um vítaspyrnuna sem FH fékk ekki rétt áður en KR-liðið komst í 2-0. „Þeir segja það fróðir menn að þetta hafi verið víti en ég held að við höfum nú spilað hérna tvo leiki og ekki fengið neitt. Ég hef ekkert meira um það segja," sagði Heimir en fer það ekki í taugarnar á honum að FH er ekki að fá víti leik eftir leik á KR-vellinum. „Við getum ekki látið eitt og annað fara í taugarnar á okkur. Þetta snýst um að einbeita sér að því að spila fótbolta og við gerðum það ekki nógu vel í kvöld. Þá verðum við bara að spýta í lófana og gera betur næst," sagði Heimir.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Fótbolti Mæta örmagna til leiks á HM félagsliða eftir langt og strembið tímabil Fótbolti Knicks horfir til Dallas í leit að næsta þjálfara Körfubolti Karlmaður lést eftir fall á úrslitaleik Þjóðadeildarinnar Fótbolti ÍR og Njarðvík áfram taplaus Íslenski boltinn „Ég er glaður að Eiður Smári sé ekki hérna“ Fótbolti „Þróttarar gefa ekkert eftir, er þeim ekki alvara í þessu stríði?“ Íslenski boltinn Næstum því ótrúleg endurkoma Wales í Belgíu Fótbolti Arnar rifjaði upp góða tíma með norður-írskum félögum Fótbolti Thomas Frank að taka við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR og Njarðvík áfram taplaus „Þróttarar gefa ekkert eftir, er þeim ekki alvara í þessu stríði?“ Landsliðskonan reddaði málunum fyrir leik á Kópavogsvelli Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Sjáðu frábært liðsmark FH, markaveislu Blika og Þrótt halda sig á toppnum Leik lokið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Gummi Ben fékk gullmerki Þórs afhent á Spáni Blómstra á meðan Valskonur eru sögulega slakar Framlengja við markahæsta manninn sinn Uppgjörið: Tindastóll-Valur 2-2 | Bið Valskvenna lengist enn Brynjar Björn í þjálfarateymi Víkings Caroline kveður Þrótt og heldur heim til Bandaríkjanna Sjáðu fimm flottustu mörk maímánaðar Leiknir byrjar vel undir stjórn Gústa Gylfa og ÍR-ingar á toppinn Andri Már fékk tískuráð á stórleiknum á Kópavogsvelli Völdu þann leikmann í Bestu deildinni sem er líkastur þeim sjálfum Ágúst Gylfason snýr aftur í boltann og tekur við Leikni „Þá verður þú bara að taka höggin“ Bönnin þegar Besta hefst aftur: Víkingar missa lykilmann og Vestri án tveggja Pétur Rúnar á bekknum hjá Stólunum í 3. deildinni Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið „Okkar markmið hefur alltaf verið að vera í toppbaráttunni“ Umfjöllun: Valur-Fram 2-1 | Níu stig í Valshúsi á níu dögum Sjáðu miðjumark Sverris, tvennu Tobiasar, rautt á Alex og Atla stela sigri Dagskráin í dag: Litrík umferð gerð upp í Stúkunni „Þetta mark átti ekki að telja“ Sjá meira