Segir gagnrýni Sigmundar Davíðs ekki standast skoðun Höskuldur Kári Schram skrifar 29. apríl 2012 12:45 Björn Valur Gíslason segir Sigmund með innistæðulausa morfís-rökspeki að vopni.
Formaður þingflokks vinstri grænna segir að yfirlýsingar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns framsóknarflokks um að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi valdið meiri skaða en hrunið sjálft séu kjánalegar og standist ekki skoðun. Sigmundur gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í ræðu á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í Rúgbrauðsgerðinni í gær. Þar sagði hann meðal annars að viðbrögð ríkisstjórnarinnar hefði verið dýrkeyptari en hrunið sjálft. Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks vinstri grænna, segir að þessi ummæli séu varla svaraverð. „Fyrst og fremst er þetta kjánalegt og varla umræðuhæft og undirstrikar hvers konar stjórnmál þessi auðkýfingur sem er í forystu Framsóknarflokksins er að ástunda. Og einkennast fyrst og fremst af svona stráksskap og upphrópunum og morfís ræðumennsku. Þetta er algerlega innantómt og stenst enga skoðun og er varla þess virði að rökræða um," segir Björn Valur. Björn segir að ríkisstjórnin hafi náð verulegum árangri í efnahagsmálum og fráleitt sé að líkja stöðunni í dag við þá stöðu sem var uppi í hruninu. „Í hruninu var því spáð að atvinnuleysi færi upp í 20 prósent. Það var spá frá Samtökum atvinnulífsins, stéttarfélögunum og ASÍ og aðrir spáðu því að þetta færi yfir 20 prósent. Atvinnuleysi er of hátt, en það er hvergi lægra en á Íslandi í OECD ríkjunum. Fjárfesting hrundi hér í hruninu vegna þess að það var fjöldgjaldþrot hjá fyrirtækjum. Verkefni töpuðust opinberir sjóðir þurrkuðust upp og það varð ekkert úr framkvæmdum. Fjárfesting hér á landi á síðasta ári var 14% af vergri þjóðarframleiðslu. Hún stefnir mun hærra í ár og er að verða með því hæsta sem gerist innan OECD ríkjanna. Ég gæti rakið svona tölur endalaust sem merki um mikinn bata á Íslandi, sem hefur vakið aðdáun erlendra ríkja og eftirtekt. Það breytir því ekki að ástandið er erfitt. En að bera það saman við það sem var hér í hruninu er fullkomlega óréttmætt og á sér enga innistæðu og það er ekki hægt að rökræða á þessum nótum," segir Björn Valur að lokum.
Tengdar fréttir Segir viðbrögð ríkisstjórnarinnar dýrkeyptari en hrunið Formaður Framsóknarflokksins segir forsætisráðherra leggja sig fram við að skapa klofning meðal þjóðarinnar. Hann segir tjónið af núverandi ríkisstjórn vera meira en tjónið af hruninu öllu. 28. apríl 2012 20:00 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Segir viðbrögð ríkisstjórnarinnar dýrkeyptari en hrunið Formaður Framsóknarflokksins segir forsætisráðherra leggja sig fram við að skapa klofning meðal þjóðarinnar. Hann segir tjónið af núverandi ríkisstjórn vera meira en tjónið af hruninu öllu. 28. apríl 2012 20:00