Sykurneysla að fara með Bandaríkjamenn í gröfina 2. apríl 2012 08:00
Í fréttaþættinum 60 Minutes á CBS sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi var fjallað um það að sykurneysla væri að fara með Bandaríkjamenn í gröfina. Í þættinum kom fram að hver Bandaríkjamaður neytir að meðaltali rúmlega 59 kílóa af unnum sykri á hverju ári. Rætt var við Robert Lustig doktor í læknisfræðum við Kaliforníuháskólann en sérgrein hans er að fást við offitu barna. Lustig segir að hin gífurlega sykurneysla Bandaríkjamanna sé að leggja þjóðina að velli. Fram kemur í máli hans að sykurneysla sem slík valdi ekki aðeins offitu heldur megi m.a. rekja annars stigs sykursýki og hjartasjúkdóma beint til hennar. Lustig nefnir sem dæmi að þegar lifrin þarf að vinna úr miklu magni af sykri breytir hún hluta hans í litla fituklumpa sem síðan stífla æðakerfið. Lustig vill að sykur sé meðhöndlaður sem álíka heilsufjandi og áfengi og tóbak. Íslendingar eru þekktir fyrir mikla sykurneyslu á síðustu árum og eiga raunar Norðurlandamet í þeim efnum. Íslendingar neyta að meðaltali um 48 kílóa af unnum sykri á mann á ári. Til samanburðar neyta Norðmenn rúmlega 32 kílóa af sykri en þeir eru neyslugrennstir Norðurlandaþjóða í þessum efnum.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira