Rannsókn á tildrögum sjóslyssins hafin HJH skrifar 26. janúar 2012 19:44
Rannsókn á tildrögum slyssins sem varð þegar Hallgrímur SI-77 sökk út frá ströndum Noregs er hafin, hún fer fram á Íslandi og verður í höndum rannsóknarnefndar sjóslysa. Lögregla og björgunaraðilar í Noregi vinna nú við að safna gögnum og verða þau send hingað til lands. Þar er til dæmis um að ræða veðurspár undanfarna daga, skýrslur frá björgunaraðilum og lögreglu. Jón Arilíus Ingólfsson forstöðumaður nefndarinnar býst við að fá þau í fyrsta lagi eftir helgi en auk þess að vinna úr norsku upplýsingunum verður skýrsla tekin af sjómanninum sem komst lífs af en vonir eru bundnar við að hann geti varpað ljósi á atburðarrásina. „Ef að til dæmis það gerist eitthvað sérstakt, ef það er leki, eða skipið fær á sig sjó til þess að eitthvað sem verður til þess að eitthvað áfall gerist þá tekur þetta einhverjar mínútur. Þá átta menn sig á því hvað hafi gerst og við erum að vona að það sé svo í þessu tilfelli," segir Jón. Togarinn var skoðaður af siglingastofnun í janúar og fékk í kjölfarið útgefið haffæraskírteini fram í maí. Það þýðir að togarinn var sjófær og mátti sigla úr höfn með áhöfn. Hann hafði staðið ónotaður við bryggju á Siglufirði í nokkra mánuði áður en hann lagði af stað til Noregs síðastliðinn sunnudag. „Okkur skilst að það hafi verið litð eftir því þar og hugsað um það þennan tíma og við vitum að það var skoðað af Siglingastofnun nú í janúar og það hafi fengið haffærisskirteini þar og fram í maí," segir Jón. Skipið hafi því verið sjófært og mátt sigla úr höfn. Jón segir að mönnunin á skipinu hafi verið í lagi. „Þetta hefur bara verið siglingin frá Íslandi til Noregs og ég held að sú mönnum hafi verið allt í lagi til þess. Það var ekki neitt annað. Þeir voru ekki að fara að fiska eða með neinn flutning eða neitt slíkt – þetta hefur bara verið lágmark miðað við þessa ferjusiglingu," segir Jón. Skýrsla verður tekin af manninum sem lifði af strax og hann kemur til landsins.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira