Skoðun

Að trúa á evruna

Eygló Harðardóttir skrifar
Trú stuðningsmanna aðildar að Evrópusambandinu á evruna er mikil. Ef marka má málflutning þeirra er upptaka evru eina leiðin til að takast á við efnahags- og peningamál landsins. Þetta ítrekaði Árni Páll Árnason, fulltrúi Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd, nýlega á Rás 2. Því kæmi ekki til greina að fresta eða hætta við umsóknina, líkt og samstarfsmenn hans í Vinstri grænu hafa lagt til.

Hinir trúuðu bæta svo við að enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi, annar en Samfylkingin, hafi trúverðuga stefnu varðandi losun gjaldeyrishaftanna eða stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Eina leiðin sé ESB og upptaka evru og þar boðar Samfylkingin hina einu sönnu trú.

Þessu hafna ég. Upptaka erlendrar myntar, hvort sem hún heitir evra, norsk króna eða kanadískur dollari mun ekki leysa vandann. Upptaka þessara mynta mun ekki leiða til þess að viðkomandi ríki „gefi" Íslendingum rúmlega 1.000 milljarða í erlendum gjaldeyri til að borga út erlenda spákaupmenn, eða aðra þá sem vilja fara með fjármuni úr landi.

Nei, upptaka erlendrar myntar verður aðeins gerð með því að skuldsetja íslenska Seðlabankann og íslenska ríkið enn frekar með beinni lántöku hjá erlendum seðlabönkum. Eða eins og Árni Páll orðaði það í grein í Fréttablaðinu „…að evrópski Seðlabankinn myndi veita fyrirgreiðslu til að unnt yrði að fjármagna útflæðið allt strax í upphafi eða á fárra ára tímabili, með endurgreiðslu yfir lengra tímabil".

Leið Evrópusinna er enn á ný að steypa ríkinu í enn meiri skuldir.

Allt frá tímum minnihlutastjórnarinnar hefur þingflokkur Framsóknarmanna lagt fram tillögur um hvernig megi losa gjaldeyrishöftin. Þær eru m.a. uppboðsmarkaður fyrir krónur, beinir samningar við erlenda eigendur krónueigna, afskriftir skulda og hvati til fjárfestinga og atvinnusköpunar. Jafnframt yrði sett þak á verðtrygginguna, m.a. til að verja íslensk heimili við afnám haftanna. Þá hafa komið fram hugmyndir um útgöngugjald eða skatt á útstreymi gjaldeyris fyrir þá sem vilja losa krónueignir sínar sem fyrst.

Árni Páll hefur kallað eftir plani B til lausnar á efnahagsvandanum. Framsóknarmenn hafa ítrekað lagt fram tillögur sem ekki krefjast gríðarlegrar skuldsetningar við erlenda seðlabanka. Árni Páll hefur kosið að hlusta ekki.

Kannski vegna þess að tillögur Framsóknarmanna leiða ekki sjálfkrafa til inngöngu í ESB og upptöku evru?




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×