Ánægjuleg og slysalaus áramót Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar 27. desember 2012 06:00 Um hver áramót skjóta Íslendingar upp hundruðum tonna af flugeldum sér og öðrum til ánægju. Af og til blossar upp umræða hvort setja eigi allt þetta púður í hendur almennings með þeirri slysahættu sem því fylgir, þar sem hitinn getur til að mynda orðið allt að 1.200 °C. Fæstir litu sennilega áramótin sömu augum ef flugeldanna nyti ekki við og mörgum þætti tímamótin heldur litlaus þannig. Að baki hverjum flugeldi liggja ítarlegar prófanir og rannsóknir sem tryggja að hann sé sem öruggastur. Ef átt er við hann og eiginleikunum breytt bjóða menn hættunni heim því engan veginn er hægt að vita hvernig flugeldurinn springur, hversu hratt eða hver krafturinn verður. Ungir drengir eru í mesta áhættuhópnum og mikilvægt að foreldrar lofi þeim ekki að meðhöndla flugeldavörur. Seljendur þurfa einnig að ganga úr skugga um að aldursmörk séu virt því foreldrar mega síns lítils ef börnin geta keypt vörurnar sjálf. Ef allir fara eftir leiðbeiningum í einu og öllu og gæta fyllsta öryggis ættu áramótin að geta orðið slysalaus. Gætið vel að börnum, þau þekkja ekki hætturnar eins og fullorðnir. Lesið vel allar leiðbeiningar sem fylgja flugeldum. Notið alltaf hlífðargleraugu jafnvel þótt þið séuð aðeins áhorfendur. Verjið hendur með skinn- eða ullarhönskum ef meðhöndla á flugeldavörur. Geymið flugeldana fjarri þeim stað sem skotið er upp á. Ekki geyma flugeldavörur í vasa, ekki einu sinni rokeldspýtur. Skjótið upp á opnu svæði og í a.m.k. 20 m fjarlægð frá húsum, bílum og fólki og látið þá sem fylgjast með standa vindmegin við skotstað. Aldrei má kveikja í flugeldum sem haldið er á, það má eingöngu með sérmerkt handblys. Rakettur verða að vera á traustri undirstöðu þegar þeim er skotið upp. Stöðugt undirlag er nauðsynlegt fyrir standblys og skotkökur sem þurfa mikið rými. Aldrei má halla sér yfir vöru þegar kveikt er í. Tendra skal á kveiknum með útréttri hendi og víkja strax frá. Ef flugeldur springur ekki má ekki nálgast hann í nokkrar mínútur. Ekki reyna að kveikja aftur í heldur hellið vatni yfir hann. Munið að áfengi og flugeldar fara aldrei saman. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Um hver áramót skjóta Íslendingar upp hundruðum tonna af flugeldum sér og öðrum til ánægju. Af og til blossar upp umræða hvort setja eigi allt þetta púður í hendur almennings með þeirri slysahættu sem því fylgir, þar sem hitinn getur til að mynda orðið allt að 1.200 °C. Fæstir litu sennilega áramótin sömu augum ef flugeldanna nyti ekki við og mörgum þætti tímamótin heldur litlaus þannig. Að baki hverjum flugeldi liggja ítarlegar prófanir og rannsóknir sem tryggja að hann sé sem öruggastur. Ef átt er við hann og eiginleikunum breytt bjóða menn hættunni heim því engan veginn er hægt að vita hvernig flugeldurinn springur, hversu hratt eða hver krafturinn verður. Ungir drengir eru í mesta áhættuhópnum og mikilvægt að foreldrar lofi þeim ekki að meðhöndla flugeldavörur. Seljendur þurfa einnig að ganga úr skugga um að aldursmörk séu virt því foreldrar mega síns lítils ef börnin geta keypt vörurnar sjálf. Ef allir fara eftir leiðbeiningum í einu og öllu og gæta fyllsta öryggis ættu áramótin að geta orðið slysalaus. Gætið vel að börnum, þau þekkja ekki hætturnar eins og fullorðnir. Lesið vel allar leiðbeiningar sem fylgja flugeldum. Notið alltaf hlífðargleraugu jafnvel þótt þið séuð aðeins áhorfendur. Verjið hendur með skinn- eða ullarhönskum ef meðhöndla á flugeldavörur. Geymið flugeldana fjarri þeim stað sem skotið er upp á. Ekki geyma flugeldavörur í vasa, ekki einu sinni rokeldspýtur. Skjótið upp á opnu svæði og í a.m.k. 20 m fjarlægð frá húsum, bílum og fólki og látið þá sem fylgjast með standa vindmegin við skotstað. Aldrei má kveikja í flugeldum sem haldið er á, það má eingöngu með sérmerkt handblys. Rakettur verða að vera á traustri undirstöðu þegar þeim er skotið upp. Stöðugt undirlag er nauðsynlegt fyrir standblys og skotkökur sem þurfa mikið rými. Aldrei má halla sér yfir vöru þegar kveikt er í. Tendra skal á kveiknum með útréttri hendi og víkja strax frá. Ef flugeldur springur ekki má ekki nálgast hann í nokkrar mínútur. Ekki reyna að kveikja aftur í heldur hellið vatni yfir hann. Munið að áfengi og flugeldar fara aldrei saman.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar