Innlent

Rann stjórnlaust niður í grjótagarð

Grindavík.
Grindavík.
Mannlaus sendibifreið með kerru aftan í lagði af stað frá útgerðarfyrirtækinu Vísi í Grindavík í gær, rann niður bratta brekku, áfram yfir götu og hafnaði á grjótgarði við höfnina.

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um þetta óvænta ferðalag bifreiðarinnar um hádegisbilið í gær.

Bílnum hafði verið lagt á bílastæði við Vísi og rann hann tugi metra áður en grjótgarðurinn stöðvaði ferð hans. Af förum eftir hann að dæma hafði hann rétt sneytt fram hjá ljósastaur í brekkunni. Farmur var á kerrunni sem hann dró. Minni háttar skemmdir urðu á bíl og kerru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×