Bandaríkin og Spánn mætast í úrslitaleiknum á öðrum leikunum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2012 21:36 LeBron James fagnar. Mynd/Nordic Photos/Getty
Bandaríkin og Spánn spila um gullið í körfuboltakeppni Ólympíuleikanna í London en þetta varð ljóst í dag. Spánverjar unnu Rússa og Bandaríkjamenn fóru illa með Argentínumenn. Lið Bandaríkjamanna og Spánverja mætast því í úrslitaleiknum á öðrum Ólympíuleikunum í röð. Bandaríkin vann sannafærandi 26 stiga sigur á Argentínu, 109-83. Argentínumenn stóðu í þeim bandarísku fram í hálfleik þegar Bandaríkin var sjö stigum yfir, 47-40. Eins og oft áður setti bandaríska liðið í fluggírinn í þriðja leikhlutanum sem liðið vann 27-17 og gerði svo gott sem út um leikinn. Carmelo Anthony skoraði síðan þrjá þrista á 40 sekúndum í upphafi fjórða leikhluta og staðan var orðin vandræðaleg fyrir þá argentínsku. Kevin Durant var stigahæstur hjá Bandaríkjamönnum með 19 stig, LeBron James var með 18 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar og Carmelo Anthony skoraði 18 stig. Kobe Bryant lét sér nægja 13 stig. Manu Ginóbili skoraði mest fyrir Argentínu eða 18 stig. Spánn vann átta stiga sigur á Rússlandi, 67-59, í fyrri undanúrslitaleiknum en það dugði Rússunum ekki að vera 31-20 yfir í hálfleik. Spánverjar unnu seinni hálfleikinn 47-28 og þar með leikinn með átta stigum. Pau Gasol var stigahæstur hjá Spáni með 16 stig auk þess að taka 12 fráköst en José Calderón kom næstur með fjóra þrista og 14 stig. Alexander Kaun var stighæstur Rússa með 14 stig en Andrei Kirilenko skoraði 10 stig og tók 8 fráköst. Bandaríkjamenn eru ríkjandi Heims- og Ólympíumeistarar en Spánverjar hafa unnið síðustu tvær Evrópukeppnir. Það bíða því margir spenntir eftir því hvort spænska liðinu takist að stoppa stórskotalið Bandaríkjanna á sunnudaginn.
Mest lesið Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti „Labbar ekki inn í líkamsrækt og byrjar að sprauta í þig sterum“ Sport Toone með sögulega fullkomna tölfræði Fótbolti Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Körfubolti Raggi Nat á Nesið Körfubolti Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Körfubolti Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Fótbolti Jóhannes kominn aftur heim en ekki með KR í kvöld Fótbolti Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Sjá meira