Vilja hert eftirlit með dýralyfjagjöf og búfjárafurðum 3. maí 2012 04:00 Rafræn skráning verður tekin upp til að uppfylla reglur um eftirlit. Þegar hefur slík skráning verið tekin upp fyrir nautgripi og hesta. fréttablaðið/stefán
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) telur að herða þurfi opinbert eftirlit á Íslandi til að tryggja að kjöt og mjólk innihaldi ekki efnaleifar af dýralyfjum. Yfirdýralæknir segir niðurstöður ESA frekar hastarlegar og sumar byggðar á misskilningi, þó sé þar að finna gagnlegar ábendingar sem unnið verði úr. Nýtt rafrænt skráningarkerfi með skráningu dýralyfja og lyfjasölu dýralækna er í burðarliðnum, en það er forsenda þess að unnt verði að sinna lögboðnu eftirliti. ESA hefur eftirlit með framkvæmd evrópsku matvælalöggjafarinnar hér á landi. Af því tilefni komu fulltrúar stofnunarinnar í eftirlitsheimsókn í desember 2011 til að fara yfir framkvæmd á eftirliti með efnaleifum í dýraafurðum, með sérstakri áherslu á eftirlit með notkun dýralyfja. Í nýútkominni skýrslu, byggðri á heimsókninni, eru gerðar nokkrar athugasemdir við eftirlitið hér á landi. Helstar eru að dýralæknar gefi ekki út lyfseðla og bændur skorti því upplýsingar um biðtíma frá lyfjagjöf til slátrunar. Eins að sláturhús fái ekki upplýsingar til að tryggja að dýrum, sem hafa verið gefin lyf, sé ekki slátrað áður en biðtími sé liðinn. Eins segir: „stór hluti dýralækna hefur ekki sætt neinu eftirliti stjórnvalda.“ Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, segir hættuna, sem felst í því að lyfjaleifar berist á disk neytenda, helst vera fyrir þá sem eru með ofnæmi fyrir lyfjum, til dæmis pensilíni. Hins vegar séu niðurstöður ESA hastarlegar og sumar hverjar byggðar á misskilningi. „Til dæmis skortir bændur ekki skriflegar upplýsingar um biðtíma. Allar upplýsingar eru skráðar á lyfjaglösin svo bændur vita nákvæmlega hvernig á að fara með þau.“ Halldór segir það rétt að dýraeigendum beri skylda til að tryggja að dýr séu ekki send í sláturhús með lyfjaleifar. Hins vegar geti mistök alltaf átt sér stað. Nýtt skráningarkerfi, HEILSA, muni vonandi koma í veg fyrir þau. Upplýsingar séu skráðar í kerfið og fari yfir í heilsukort gripa sem fylgja þeim í sláturhús. Kerfið hefur þegar verið innleitt fyrir nautgripi og hross. Fundist hafa gripir eftir komu í sláturhús sem voru með lyfjaleifar þegar viðkomandi gögn sem fylgdu þeim voru skoðuð. Afurðum þeirra var hent. Hvað mjólkina varðar segir Halldór að virkt eftirlit sé með allri mjólk sem berist til afurðastöðvanna og því sem ekki standist skoðun sé hellt niður. Matvælastofnun og Lyfjastofnun hafa þegar hafið úrvinnslu ábendinga ESA. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira