Í varðhaldi grunaður um grófa misnotkun 3. maí 2012 00:01 Málið hefur verið til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum í hálfan annað mánuð. Fréttablaðið/gva
Rúmlega fertugur karlmaður af Suðurnesjum hefur setið í gæsluvarðhaldi í um sex vikur grunaður um að hafa beitt stjúpdóttur sína grófu kynferðisofbeldi með reglulegu millibili um margra ára skeið. Jafnframt hafa verið til rannsóknar möguleg brot mannsins gegn dóttur sinni og jafnvel þriðju stúlkunni til viðbótar, sem einnig tengdist honum fjölskylduböndum. Maðurinn var handtekinn rúmri viku fyrir páska eftir að lögreglunni á Suðurnesjum barst kæra á hendur honum fyrir gróft ofbeldi gegn stjúpdótturinni og vægari brot gegn dóttur hans, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Stjúpdóttirin, sem nú er rúmlega tvítug, hafði greint móður sinni frá ofbeldinu og kvað það hafa staðið með hléum í um áratug. Í kjölfarið sagði dóttir þeirra, sem er á unglingastigi í grunnskóla, frá því að maðurinn hefði leitað á hana. Sögunum fylgdi að hann hefði hótað þeim lífláti segðu þær móður sinni eða öðrum frá brotunum. Samkvæmt heimildum blaðsins áttu brotin sér flest stað þegar móðirin var fjarstödd vegna næturvinnu. Síðustu brotin gegn stjúpdótturinni munu hafa verið framin einni viku áður en maðurinn var handtekinn. Þá hefur, sem áður segir, kviknað grunur um vægari brot gegn þriðju stúlkunni, sem um skeið var tengd inn í fjölskylduna. Maðurinn var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald til einnar viku. Það hefur síðan í þrígang verið framlengt. Maðurinn var síðast leiddur fyrir Héraðsdóm Reykjaness í gær og þar kvað dómari upp þann úrskurð að maðurinn skyldi sæta varðhaldi til loka maímánaðar vegna almannahagsmuna. Dóttir mannsins og stjúpdóttir hafa þegið aðstoð frá fagfólki vegna málsins, meðal annars hjá Stígamótum. Lögreglan á Suðurnesjum verst fregna af málinu. Þar fékkst lítið sem ekkert gefið upp um það annað en staðfesting á því að maður sæti í gæsluvarðhaldi grunaður um kynferðisbrot. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira