Guðmundur: Enginn heppnissigur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. ágúst 2012 21:48 Mynd/Valli
Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson gat vitaskuld ekki annað en verið ánægður með framnmistöðu sinna manna eftir sigur á Frökkunum í kvöld. „Ég verð að játa að ég er mjög ánægður með leik liðsins og hvernig við náðum að spila, bæði í vörn og sókn. Hraðaupphlaupin voru frábær, markvarslan líka og er eiginlega alveg sama á hvaða sviði handboltans það var - við spiluðum mjög vel í kvöld." „Þess vegna unnum við þennan leik í kvöld. Það var ekki út af heppni eða einhverju öðru slíku." „Við byrjuðum gríðarlega vel en fengum nokkra brottrekstra á okkur undir lok fyrri hálfleiks og þeir gengu á lagið. Við vorum reyndar stundum of fljótir að skjóta á markið þeirra á þessum leikkafla." „Svo í síðari hálfleik skiptust liðin á að leiða leikinn en þegar uppi var staðið fannst mér við eiga það skilið að vinna þennan leik." Ólafur Stefánsson skoraði mikilvægt mark í lok fyrri hálfleiks, eftir að Frakkar höfðu skorað sex mörk gegn aðeins einu frá Íslandi og jafnað leikinn í fyrsta sinn. „Markið hjá Ólafi var gríðarlega mikilvægt. Við tókum leikhlé fyrir þessa sókn og stilltum þessu upp og niðurstaðan var að þetta gaf okkur frábært mark í erfiðri stöðu." Guðmundur segir nú mikilvægt að átta sig á því að handboltakeppnin á Ólympíuleikunum er löng og hvergi nærri lokið. „Það er mikil ögrun fólgin í því að halda fullri einbeitingu allan tímann. Allir þjálfarar liða sem hafa tekið þátt í svona móti eru sammála um það að þetta sé eitt stærsta verkefni hvers liðs. Það þurfum við að gera það nú. Við leyfum okkur að fagna þessum sigri í kvöld en svo byrjum við að undirbúa okkur fyrir næsta leik." Sjálfsagt eru Bretar ekki vongóður um sigur gegn Íslandi á mánudag en Guðmundur tekur öll sín verkefni alvarlega. „Það dugir ekkert kjaftæði. Í þessari íþrótt er þess krafist að maður fari í öll verkefni af fullum krafti og við erum hingað komnir til að gera einmitt það."
Mest lesið Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira