Lögbrot í grunnskólum Guðrún Valdimarsdóttir skrifar 15. febrúar 2011 12:40 Foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík sætta sig ekki við illa ígrundaðan niðurskurð í grunnskólum Reykjavíkur. Núna stöndum við frammi fyrir beinum niðurskurði sem er niðurskurður ofan á hagræðingu. Áætlaður heildarniðurskurður hjá menntasviði á ársgrundvelli er núna rúmur milljarður króna en uppsafnaður niðurskurður nálgast 20%. Formaður menntaráðs fullyrðir að borgin muni sjá til þess að grunnskólalög verði ekki brotin. Flestir foreldrar eiga bágt með að trúa því þar sem nú þegar er verið að brjóta á réttindum barna til náms um alla borg. Frekari niðurskurður mun aðeins auka á þann vanda. Með fyrirhugaðri 250 milljón króna skerðingu á kennslumagni munu skólarnir ekki geta sinnt lögbundinni skyldu sinni og framfylgt Aðalnámskrá grunnskóla. Ástandið er nógu slæmt fyrir. List- og verkgreinakennsla er ekki fullnægjandi í mörgum skólum. Börnum er víða ekki boðið upp á sundkennslu og forfallakennsla hefur verið lítil sem engin á þessum skólavetri. Með fjölgun í bekkjum verður ómögulegt að framfylgja stefnu menntayfirvalda um skóla án aðgreiningar þannig að öll börn eigi jafnan rétt til náms og eigi að fá stuðning og kennslu við sitt hæfi. Mörgum foreldrum finnst enn verra að geta ekki treyst því að börn þeirra séu í öruggu umhverfi á skólatíma eins og þau eiga rétt á samkvæmt landslögum. Niðurskurður á fjárveitingum til gæslumála í frímínútum og í matartímum mun skapa kjörlendi fyrir aukið einelti. Þeir sem til þekkja vita að eineltismálin eru allt of mörg og erfið nú þegar. Grunnskóli er bundinn í lög og börnin hafa skólaskyldu. Þau skulu sækja grunnskóla hvort sem þeim líkar betur eða verr. Foreldrar gera þá eðlilegu kröfu að ekki sé brotið á börnunum í skólanum. Það er skylda Reykjavíkurborgar að fara eftir lögum og að forgangsraða í þágu velferðar barna og unglinga. Á erfiðum tímum ættum við að byggja upp grunnstoðir samfélagsins en ekki brjóta þær niður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Sjá meira
Foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík sætta sig ekki við illa ígrundaðan niðurskurð í grunnskólum Reykjavíkur. Núna stöndum við frammi fyrir beinum niðurskurði sem er niðurskurður ofan á hagræðingu. Áætlaður heildarniðurskurður hjá menntasviði á ársgrundvelli er núna rúmur milljarður króna en uppsafnaður niðurskurður nálgast 20%. Formaður menntaráðs fullyrðir að borgin muni sjá til þess að grunnskólalög verði ekki brotin. Flestir foreldrar eiga bágt með að trúa því þar sem nú þegar er verið að brjóta á réttindum barna til náms um alla borg. Frekari niðurskurður mun aðeins auka á þann vanda. Með fyrirhugaðri 250 milljón króna skerðingu á kennslumagni munu skólarnir ekki geta sinnt lögbundinni skyldu sinni og framfylgt Aðalnámskrá grunnskóla. Ástandið er nógu slæmt fyrir. List- og verkgreinakennsla er ekki fullnægjandi í mörgum skólum. Börnum er víða ekki boðið upp á sundkennslu og forfallakennsla hefur verið lítil sem engin á þessum skólavetri. Með fjölgun í bekkjum verður ómögulegt að framfylgja stefnu menntayfirvalda um skóla án aðgreiningar þannig að öll börn eigi jafnan rétt til náms og eigi að fá stuðning og kennslu við sitt hæfi. Mörgum foreldrum finnst enn verra að geta ekki treyst því að börn þeirra séu í öruggu umhverfi á skólatíma eins og þau eiga rétt á samkvæmt landslögum. Niðurskurður á fjárveitingum til gæslumála í frímínútum og í matartímum mun skapa kjörlendi fyrir aukið einelti. Þeir sem til þekkja vita að eineltismálin eru allt of mörg og erfið nú þegar. Grunnskóli er bundinn í lög og börnin hafa skólaskyldu. Þau skulu sækja grunnskóla hvort sem þeim líkar betur eða verr. Foreldrar gera þá eðlilegu kröfu að ekki sé brotið á börnunum í skólanum. Það er skylda Reykjavíkurborgar að fara eftir lögum og að forgangsraða í þágu velferðar barna og unglinga. Á erfiðum tímum ættum við að byggja upp grunnstoðir samfélagsins en ekki brjóta þær niður.
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar