AGS: Stöðugleiki í höfn og bati framundan á Íslandi 17. janúar 2011 10:38
Stöðugleiki er í höfn og bati í sjónmáli fyrir íslenska hagkerfið, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Batinn virðist þó ætla að verða hægari en búist var við, meðal annars vegna seinagangs við endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur birt ýmis gögn um fjórðu endurskoðun sjóðsins á efnahagsáætlun landsins. Í endurskoðuninni kemur fram að stöðugleika sé náð í íslenska hagkerfinu og bati sé í sjónmáli. Hann verði hins vegar minni á árinu 2011 en spáð var við síðustu endurskoðun sjóðsins, nú er tveggja prósenta hagvexti spáð í stað þriggja prósenta. Ástæðan er einkum sögð vera sú að tafir hafi verið á stórum fjárfestingarverkefnum í orkufrekum iðnaði. Þá sé skuldavandi heimila og fyrirtækja einnig áhættuþáttur þegar kemur að hagvextinum, en báðir hópar hafi beðið með að endurskipuleggja skuldir sínar, þar sem þeir eigi sífellt von á ríkulegri aðgerðum frá ríkisstjórninni. Sjóðurinn segir hægt hafa gengið að endurskipuleggja skuldir fyrirtækja, eða taka þau til skipta, þrátt fyrir að vanskil séu algeng. Þannig hafi hægagangurinn þau áhrif að fyrirtækin séu í óvissu varðandi skuldabyrði sína, og hindri það að framleiðsluþættir rati til lífvænlegra fyrirtækja. Skuldastaða heimila sé svo erfið viðfangs vegna flækjustigs skuldana. Þá segir að ýmsar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hjálpi heimilinum tímabundið að eiga við skuldir sínar, en minna fari fyrir víðtækri endurskipulagningu skuldanna.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira