Leghálskrabbamein frekar en eitruð HPV bólusetning Þorsteinn Scheving Thorsteinsson skrifar 7. nóvember 2011 05:00 Í grein Fréttablaðsins þann 21. okt. sl. undir fyrirsögninni „Bólusetning gegn leghálskrabbameini" vakti Jakob Jóhannesson athygli með þremur spurningum er hann bar upp, eða: „Er hagkvæmt fyrir þjóðfélagið að 12 ára stúlkur hér á landi verði bólusettar þeim að kostnaðarlausu? Virkar bóluefnið? Eru þau örugg?" Það má segja að mönnum hér hafi tekist mjög vel til við að koma inn þessum áróðri fyrir HPV-bólusetningum hér, svo og inn á stjórnmálamenn til að fá þá til að festa kaup á þessu HPV bóluefni, en almenningur gerir sér það hins vegar alveg ljóst að það er mun auðveldara að selja þessi bóluefni svona, þar sem flestir foreldrar eru ekki tilbúnir að borga u.þ.b. 75 þúsund kr. fyrir HPV-bólusetninguna á hvert stúlkubarn. Menn gera sér einnig grein fyrir því, að mun auðveldara er með þessum hætti að komast hjá því að veita upplýsingar um innihaldsefni, áhættur og annað, heldur en annars. Maður hefði nú haldið að heilbrigðisyfirvöld hér könnuðu reynslusögur og klínískar rannsóknir HPV-bóluefnanna mun betur en raun ber vitni, eða þar sem reynslusögur fórnarlamba HPV-bóluefnanna liggja út um allt internetið, svo og upplýsingar frá heilbrigðisfólki og vísindamönnum er segja að bóluefnið sé alls ekki 100% öruggt. Það þykir kannski ofsalega sniðugt hér á landi, að segja að HPV-bóluefnin séu örugg þegar langtíma niðurstöður eru ekki til, eins og minnst hefur verið á í New England Journal of Medicine og gagnrýnt hefur verið í Judicial Watch (judicialwatch.org). Það þykir kannski ofsalega sniðugt að auglýsa allt svona öruggt og hvað eina þegar vísindamenn eins og dr. Diane Harper er vann að þróun HPV-bóluefnanna, segir að bóluefnið sé ekki „100% öruggt" (Scotsman.com, 2. nóv. 2008) og þegar hún hefur fullyrt að bóluefnið muni gera lítið gagn gegn leghálskrabbameini (naturalnews.com/027225_vaccine_cancer_cervical.html)? Af hverju á fólk að taka áhættu með þessum HPV bóluefnum (gegn u.þ.b. 70% HPV sýkinga) þegar flestar konur með HPV sýkingar verða ekki veikar af þeim, og í 90% HPV tilfella þá losar ónæmiskerfið sig við sýkingarnar á innan við 3 árum (cdc.gov/std/hpv/stdfact-hpv.htm)? Mönnum þykir það kannski ekkert svo merkilegt þegar læknahjón á borð við Ratner lýstu yfir á CBS-sjónvarpsstöðinni, að það hefði verið betra fyrir dóttur þeirra Amöndu, „að fá leghálskrabbamein heldur en að fá bólusetninguna".(cbsnews.com/stories/2009/08/19/cbsnews_investigates/main5253431.shtml). Við höfum auk þess fjöldann allan af öðrum hryllingssögum fórnarlamba HPV-bóluefnanna er segja, að bóluefnið sé ekki öruggt. Í því sambandi þurfa menn ekki annað en að slá fáeinum nöfnum í leitarvél á internetinu, eins og t.d: Carley Steele, Rebecca Ramagge, Paige Brennan, Ashleigh Cave, Hattie Vickery, Lauren Smith, Sarah Chandler, Leah Mann, og Debbie Jones til að finna þessar hryllingssögur. Í þessum töluðu orðum hafa 103 einstaklingar verið skráðir látnir eftir HPV bólusetningu, 4.777 náðu ekki bata, 763 hafa hlotið örorku, 9.115 tilfelli á neyðar- og bráðamóttöku, 2.307 sjúkrahúslegur og 201 mjög alvarleg tilfelli eftir bólusetningu skv. VAERS- gagnagrunninum og sanevax.org. Í þessum sömu niðurstöðum er koma frá heilbrigðisfólki og fórnarlömbum má einnig sjá 430 óvenjulegar niðurstöður úr pap-skoðunum, 157 tilfelli legháls dysplasia og 41 leghálskrabbamein eftir HPV bólusetningu. Vonandi koma ekki upp mörg alvarleg tilfelli hér, þar sem stúlkur hér eru ekki spurðar um hvort þær séu með hita og HPV smit, samanber þessar 32,5% líkur sem taldar eru á því að stúlkur geti fengið leghálskrabbamein á byrjunarstigi ef þær eru fyrir með HPV smit (May 2006 VRBPAC Report-fda.gov/ohrms/dockets/ac/06/briefing/2006-4222B3.pdf). Hvað um það, menn hér eru heldur ekkert á því að senda fólki bæklinga áður um þessi atriði eða neitt varðandi innihaldsefnin og annað, og hvað þá að óska eftir bóluefnaskírteinum. Ef menn eru hins vegar svona vissir á því að þetta HPV bóluefni sé svo öruggt og hvað eina, vilja þeir þá ekki einnig taka persónulega fjárhagslega ábyrgð fyrir því að bóluefnið sé öruggt? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Sjá meira
Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir skrifar
Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir,Guðrún Erla Hilmarsdóttir,Elva Björk Bjarnadóttir Skoðun