Gunnar Heiðar: Ég þarf að finna gleðina aftur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. febrúar 2011 13:40 Gunnar Heiðar við undirskriftina í dag.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson er mjög ánægður með að vera kominn aftur til Eyja en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við ÍBV í dag. "Þetta hefur verið í pípunum í smá tíma og Eyjamenn hafa alltaf verið í sambandi við mig. Ég skoðaði nokkur tilboð að utan en það var ekkert sem mér fannst nógu spennandi," segir Gunnar við Vísi en hann segist líka hafa komið heim af fjölskylduástæðum. "Þar sem konan mín er ólétt og á von á sér í apríl ákváðum við að skella okkur til Eyja. Það er ein aðalástæðan fyrir þessari ákvörðun. Við vorum ekki komin með neitt fast og því var fínt að koma heim. Við sjáum svo hvað setur í kjölfarið eftir sumarið," sagðu Gunnar sem gerir ekki ráð fyrir því að ÍBV standi í vegi fyrir sér komi aftur freistandi tilboð að utan. "Hugurinn stefnir vissulega út aftur. Ég er ekki kominn heim til þess að spila með vinstri. Ekki bara einhver gömul hetja sem þykist geta eitthvað. Það er ekki þannig. Þetta verður gaman," segir Gunnar en hann er líka að koma heim til þess að finna gleðina aftur. Tekur á að lenda í mótlæti"Síðustu tvö ár hafa verið mjög erfið fyrir mig og ég lítið fengið að spila. Þá spyr maður sig að því af hverju maður sé í þessu. Það tekur mjög á að lenda í svona mótlæti. Ég hef oft æft eins og geðsjúklingur til þess að sanna mig en svo hafa tækifærin ekki komið. Það tekur á en það sem drepur þig ekki styrkir þig. Það hefur gerst fyrir mig núna. Ég er skotheldur í dag," segir Gunnar og hlær við."Ég vil finna gleðina aftur og spila fótbolta. Það er líka gaman að taka þátt í þessu sem er að gerast í Eyjum. Ég er mikill Eyjamaður og sá hvað þetta var gaman síðasta sumar. Ég vildi endilega vera með," segir Gunnar Heiðar en það kom aldrei til greina hjá honum að semja við annað félag en ÍBV."Það er bara ÍBV hjá mér. Ég er það mikill Eyjamaður að það mun seint gerast að ég semji við annað lið á Íslandi en ÍBV."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira