Handbolti

Snorri: Erfitt að kyngja þessu

Henry Birgir Gunnarsson í Jönköping skrifar

Snorri Steinn Guðjónsson sagði að sóknarleikur íslenska liðsins hefði brugðist gegn Þýskalandi í kvöld.

"Sóknarleikurinn var lélegur. Við vorum ekki að spila vel og ekki á okkar hraða. Þá erum við yfirleitt lélegir. Við náðum ekki okkar leik. Það er erfitt að kyngja þessu því við ætluðum okkur stærri hluti," sagði Snorri fúll að vonum.

"Þjóðverjarnir voru betri. Mættu okkur fast og voru tilbúnir í þetta. Við komum aftur inn í leikinn og vörn og markvarsla kom inn.

"Við náðum samt ekki að bæta við til þess að fara fram úr þeim. Því miður hittum við ekki á það í dag. Þetta var lélegur leikur hjá okkur og þegar það gerist þá töpum við fyrir liði eins og Þýskalandi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×