Íslenski boltinn

Atli: Rauða spjaldið hafði góð áhrif

Hjalti Þór Hreinsson á Þórsvelli skrifar
Atli Sigurjónsson,
Atli Sigurjónsson, Fréttablaðið/Valli
Atli Sigurjónsson var maður leiksins gegn FH í kvöld. Þórsarinn segir að rauða spjaldið sem Ármann Pétur Ævarsson fékk hafi þjappað liðinu saman.

"Það er svekkjandi hvernig þetta endaði miðað við að við vorum komnir undir. En eftir að hafa lent undir verðum við bara að taka þessu," sagði Atli.

En hverju breytti rauða spjaldið? "Fyrst og fremst vorum við einum færri," benti Atli réttilega á.

"Við þéttum liðið í seinni hálfleik og allir hlupu aðeins meira. Þetta hafði þau áhrif að við hlupum meira og baráttan varð meiri. Þetta hafði því bara góð áhrif."

"Við viljum meina að heimavöllurinn sé sterkur og eitt stig er fínt þrátt fyrir að við hefðum viljað vinna leikinn," sagði Atli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×