Sparnaðarráð … fyrir allan peninginn Reynir Einarsson skrifar 13. janúar 2011 06:00 Í starfi mínu hjá fremur litlu fyrirtæki þar sem allir ganga í öll störf, er ég þessa dagana að fara yfir skráningar þess hjá Já annarsvegar og í Símaskrá hinsvegar. Jú þú last rétt, þetta er nefnilega ekki sami hluturinn þótt svo virðist við fyrstu sýn. Þetta er merkileg staðreynd sérstaklega með tilliti til tölvutækninnar. Ef ég reyni að fara inn á slóðina www.1818.is þá kemur upp http://ja.is/vorur-og-thjonusta/118/. Ef ég reyni við www.118.is þá gerist nákvæmlega það sama og loks ef ég slæ inn www.simaskra.is þá kemur upp http://ja.is/hradleit/. Bæði Já og Símaskráin eru skráð til húsa að Stórhöfða 33. Til að fullkomna plottið er það sami sölumaðurinn sem selur mér skráningu og auglýsingar í báða miðlana, ja.is og símaskrána og meira að segja í sama símtalinu. Símaskráin er víst stærsta handbók sem gefin er út á Íslandi í dag 200.000 eintök er mér sagt og þar af fóru 150.000 eintök í dreifingu strax fyrstu vikuna. Örugglega satt og rétt. En hver les símaskrána í dag? Hjá mínu 10 manna fyrirtæki komu níu símaskrár af 2010 útgáfunni í hús með sendibíl, átta þeirra eru enn í plastinu. Þessa einu opnaði ég til að rífa blaðsíðu úr gulu síðunum til að ræða skráningarmálin á starfsmannafundi. Á þeim fundi kom fram að fyrir skráningu hjá Já greiddi ég rétt um 100.000 krónur fyrir árið 2010 og fyrir skráningu í símaskrá greiddi ég 113.615 krónur. Það er einhver skítalykt af þessu. Hér er verið að selja sama hlutinn tvisvar, annarsvegar með vinstri hendinni og svo aftur með hægri hendinni og sú hægri veit ekki (eða vill ekki vita) hvað sú vinstri er að gera. Niðurstaða fundarins varð sú að mitt fyrirtæki ætlar ekki að borga 113.615 krónur fyrir það að vera í símaskrá 2011. Það verður eingöngu skráð þar eins og allir almennir símanotendur landsins, þ.e. í stafrófsröð undir Reykjavík og nágrenni. Það verður hvergi skráð í gulu síðurnar sem aftur þýðir að þjónustufulltrúar upplýsinga vita ekkert hvað fyrirtækið býður uppá. Ha … hvað meina ég? Jú, mér hefur nefnilega verið tjáð af sölumanni já og símaskrár að þjónustufulltrúar 118 og 1818 styðjist við gagnagrunn sem byggður er á skráningum í pappírsskrána! Ef Símaskrá er tilbúin að borga mér 113.615 krónur á hverju ári héðan í frá þá er ég tilbúinn að veita þeim upplýsingar um hvaða vörur og þjónustu ég hef uppá að bjóða svo þeir geti selt þær upplýsingar áfram í gegnum 118 og 1818 á allt að 82 krónur fyrir mínútuna. Að öðrum kosti verða væntanlegir viðskiptavinir mínir að leita að mér á ja.is með því að slá inn eitthvað af þeim 92 leitarorðum sem þar eru skráð og eru lýsandi fyrir mína vöru og þjónustu og sem ég greiði árlega um 100.000 krónur fyrir. Ég hvet þig til að fá sömu niðurstöðu hjá þínu fyrirtæki og ná fram sparnaði … fyrir allan peninginn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Skoðun Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun