
Þar fyrir neðan eru tíu fréttir úr Lífinu sem nutu einnig mikilla vinsælda á árinu.
1. Keypti hústökuhúsið - sjáðu hryllinginn
MAÍ: Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hefur hafst við nokkuð lengi.
Eins og meðfylgjandi myndband sýnir er útgangurinn í húsinu hreint ævintýralegur en Sandra, sem sýnir okkur eignina og að ekki sé minnst á garðinn, er staðráðin í að gera húsið upp og flytja inn í það með stelpunum sínum tveimur eftir þrjár vikur.

FEBRÚAR: Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtistaðnum Replay í gærkvöldi þar sem gleðskapur á vegum Hildar Líf og Lindu Ýr fór fram með látum. Stúlkurnar mættu í hvítri limmósínu og gáfu sér tíma til að pósa fyrir utan staðinn þrátt fyrir kuldann.
Sigríður Klingenberg stjórnaði veislunni en hún fékk gesti meðal annars til að dilla sér í takt við lagið Sex bomb í flutningi Tom Jones og það vakti mikla lukku.

MAÍ: Eins og myndirnar sýna var Madonna, 52 ára, klædd í ljósbláan Stellu McCartney síðkjól og Sergio Rossi skó í New York á dögunum, stórglæsileg að vanda.
Þá má sjá söngkonuna hjóla um götur New York borgar og með börnum sínum, Rocco John, 11 ára, David Banda Ritchie, 6 ára og Mercy, 5 ára, á Heathrow flugvellinum.

NÓVEMBER: „Það hefur enginn stoppað okkur úti á götu eða hringt en gagnrýnin á netinu hefur ekki farið fram hjá okkur," segir Jóhanna Metúsalemsdóttir skartgripahönnuður um viðbrögðin við auglýsingaherferð sem skartar henni og dóttur hennar, Indíu Salvöru Menuez, í aðalhlutverki.
Auglýsingaherferðin er fyrir nærfatahönnuðinn The Lake & Stars en þar sitja Jóhanna og Indía saman fyrir klæddar nærfatnaði frá hönnuðinum. Herferðin hefur vakið misjöfn viðbrögð og á vefsíðu The Huffington Post er að finna grein þar sem greinarhöfundur getur hreinlega ekki ákveðið hvort honum finnst herferðin snilldarlega framsett eða hreinlega vandræðaleg.

MAÍ: Mamma og pabbi þau gáfu mér skíðatæki til að byrja heima því ég vildi ekki vera að fara í ræktina og láta alla sjá mig, svaraði Karen Anna Guðmundsdóttir, 30 ára, sem var 120 kg en hún hefur misst 53 kg síðan hún tók ákvörðun um að taka sig í gegn með því að hreyfa sig reglulega og borða rétt.
Í meðfylgjandi myndskeiði segir Karen Anna frá því hvernig hún fór að því að léttast um 53 kg og líðanin samhliða breytingunum. Þá má einnig sjá Freyju Sigurðardóttur einkaþjálfara.
AÐRAR VINSÆLAR FRÉTTIR Á ÁRINU:
FEBRÚAR:
Anita Briem í rúminu með Superman
Ekkert aldurstakmark þegar Amor knýr dyra
MARS:
Þetta er brjóstið sem allir eru að tala um
Charlie gjörsamlega búinn að missa það
APRÍL:
Afmælispartý Völu Grand
Prinsessan greinilega sátt með brúðkaupsnóttina
MAÍ:
Eiginmaðurinn 50 árum eldri en Anna Mjöll
Fáklæddar fegurðardrottningar
ÁGÚST:
Kristrún Ösp ólétt
NÓVEMBER:
Ástfangin í ræktinni