Viðskipti innlent

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Viðskipti

Laugarvatn Fontana.
2011 var viðburðaríkt og kenndi ýmissa grasa. Hér fylgir listi yfir fimm vinsælustu fréttir ársins 2011 úr Viðskiptunum á Vísi.

Þar fyrir neðan eru tíu viðskiptafréttir sem vöktu einnig mikla athygli á árinu.









1. Gufubaðið á Laugarvatni opnar aftur í sumar

FEBRÚAR: Í sumarbyrjun opnar gufubaðið á Laugarvatni aftur undir nafninu Laugarvatn Fontana - uppspretta vellíðunnar. Gert er ráð fyrir að starfsemin skapi 10 til 12 stöðugildi á staðnum.

Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu segir að nýja gufubaðinu sé líklega betur lýst sem glæsilegum baðstað með alls kyns aðstöðu til slökunar, upplifunar og afþreyingar fyrir Laugvetninga og þann mikla fjölda innlendra og erlendra ferðamanna sem sækja Laugarvatn heim.

Iceland Express.
2. Bjóða miða á starfsmannakjörum - 5000 krónur báðar leiðir auk skatta

DESEMBER: Iceland Express hefur ákveðið að bjóða 4.576 flugmiða á svokölluðum starfsmannakjörum til almennings. Miðarnir fara í sölu á hádegi á morgun en um er að ræða ferðir nú í desember.

Í tilkynningu frá félaginu segir að með tilkomu nýrra Airbus A320 flugvéla hafi sætaframboð félagsins aukist miðað við fyrri flugflota um tæplega fimm þúsund sæti í desembermánuði.

"Á sama tíma og skipt er um flugvélar er fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins að ljúka og stendur það nú vel til að mæta vaxandi samkeppni í farþegaflugi til og frá landinu. Þá hefur ný yfirstjórn félagsins stokkað upp í rekstri þess og áætlunum," segir ennfremur.

Björn Leifsson.
3. World Class hótar lögsókn vegna skoðanakönnunar

APRÍL: Lögmaður World Class hefur hótað forráðamönnum MMR lögsókn vegna skoðanakönnunnar Þar sem almenningur var m.a. spurður um viðhorf sín til World Class.

Í bréfi lögmannsins, Sigurðar G. Guðjónssonar hrl. segir m.a. að MMR virðist ganga út frá að eigendur World Class hafi fengið skuldir afskrifaðar sem er ekki rétt.

Í tilkynningu frá MMR segir að dagana 7. til 12. apríl 2010 framkvæmdi MMR skoðanakönnun meðal almennings þar sem meðal annars var spurt um viðhorf til málefna líkamsræktarstöðvarinnar World Class eins og rætt hefur verið um þau í fjölmiðlum.

Benedikt Jóhannesson.
4. Skattheimta: 450 þúsund verða að 179 þúsundum

JANÚAR: Einstaklingur með 450 þúsund krónur í mánaðarlaun fær 40 prósent af þeim til rástöfunar og aðeins 33 prósent ef launatengd gjöld eru tekin með, þegar hið opinbera hefur tekið sitt.

Þetta er niðurstaða úr útreikningum, sem Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur hjá Talnakönnun, reiknaði út fyrir þáttinn Bítið á Bylgjunni, og greint var frá í morgun.

Laugavegur 89.
5. H&M í viðræðum um að opna tvær búðir á Íslandi

FEBRÚAR: "Við horfum til þess með miklum vonaraugum að fá svona öfluga verslun inn í miðborgina. Hún myndi gjörbreyta umhverfinu á efsta hluta Laugavegarins sem er akkúrat það sem á þarf að halda núna," segir miðborgarstjórinn Jakob Frímann Magnússon.

Á næstunni ræðst hvort sænska fatakeðjan H&M opnar útibú hér á landi. Eitt skilyrðanna fyrir því að fyrirtækið komi hingað er að það geti opnað tvær verslanir. Viðræður eru uppi um að önnur verslunin verði þar sem Sautján var til húsa á Laugavegi 89. Hin yrði hugsanlega í Smáralind. Ásgeir Bolli Kristinsson í Sautján vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.



AÐRAR FRÉTTIR SEM VÖKTU ATHYGLI Á ÁRINU:

JANÚAR:

Fasteignamarkaðurinn hríðféll í síðustu viku

Ríkir Íslendingar kaupa lúxusbíla

FEBRÚAR:

Forstjóri Össurar með 433 þúsund krónur í laun á dag

Segir enga sanngirni í að menn græði 100 milljarða á átta dögum

APRÍL:

Rekstur N1 hefur verið yfirtekinn af lánadrottnum

Jákup hagnaðist um tæplega tvo milljarða í síðustu viku

MAÍ:

Mikilvægasta mál Hæstaréttar í sjö ár

SEPTEMBER:

Opinberar tölvupósta milli sín og Pálma - Ekki hræddur við hann

NÓVEMBER:

Versluninni Lindex lokað tímabundið vegna vöruskorts

DESEMBER:

Amer Sports kaupir Nikita


Tengdar fréttir

Vinsælast á Vísi árið 2011 - Umræðan

Á hverjum einasta degi ársins birtust nýjar greinar í Umræðunni á Vísi. Hvort sem það voru fastir pennar Fréttablaðsins og Vísis, aðsendar greinar eða greinaflokkar á borð við Öðlinginn; flest helstu mál samtímans voru krufin til mergjar á þessum vinsæla og lifandi vettvangi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×