Ókunnugur karlmaður vill vera vinur dóttur þinnar Petrína Ásgeirsdóttir skrifar 8. febrúar 2011 06:00 Það er ekki heiglum hent fyrir foreldra að fylgjast með netnotkun barna sinna þó þeir telji sig gjarnan gera það. Rannsóknir SAFT hér á landi sýna að á meðan 80% foreldra telja sig vita nákvæmlega hvað börnin þeirra eru að gera á netinu, segja aðeins 20% barna að foreldrum sé kunnugt um athafnir þeirra á netinu. Flestir eru sammála um að internetið verði að umgangast af varúð og virðingu, bæði fyrir sjálfum sér og náunganum. Á saft.is og á netsvar.is er m.a. að finna ábendingar um örugga netnotkun og heilræði til foreldra um það hvernig þeir geti kennt börnum sínum að umgangast netið. Ýmsar samskiptasíður hafa notið mikillar velgengni hér á landi undanfarin ár og er Facebook þar fremst í flokki. Á síðunni kemur fram að aldurstakmark þeirra sem þar geta skráð sig inn er 13 ár. Til að skrá sig inn á síðuna, þarf því að gefa upp afmælisdag sem sýnir fram á að viðkomandi hafi aldur til að taka þátt í Facebook-samfélaginu. Barnaheill - Save the Children á Íslandi hafa á undanförnum árum ítrekað fengið ábendingar um börn sem hafa lent í klónum á óprúttnum aðilum á Facebook. Á það bæði við um börn sem eru undir 13 ára aldri og yfir. Má í því sambandi rifja upp mál 21 árs gamals karlmanns sem nýverið var dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir að hafa tælt og nauðgað barnungum stúlkum sem hann kynntist á Facebook. Það er því full ástæða til að ítreka við foreldra að virða þau aldurstakmörk sem Facebook hefur sett notendum sínum. Ekki er hægt að mæla með því að foreldrar kenni börnum sínum að falsa fæðingarár sitt til að geta verið á Facebook. Ef börnin hafa náð tilskyldum aldri er ákaflega brýnt að foreldrar fylgist grannt með netnotkun barna sinna og fari yfir þær grunnreglur sem gilda á netinu, t.a.m. hvað varðar persónuupplýsingar og aðgang að þeim. Foreldrar sem hafa samband við okkur nefna gjarnan að allir vinir barnsins fái að vera á Facebook og erfitt sé að standast þann þrýsting. Ég vil hvetja foreldra til að taka höndum saman og virða þær reglur sem í gildi eru og vera þannig góð fyrirmynd. Þannig verndum við einnig best börnin okkar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar