Íslenski boltinn

Gunnleifur Gunnleifsson: Lofa því að ná KR-leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnleifur Gunnleifsson missir af landsleikjum við Noreg og Kýpur.
Gunnleifur Gunnleifsson missir af landsleikjum við Noreg og Kýpur. Mynd/Stefán
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH og íslenska landsliðsins meiddist í tapleiknum á móti Stjörnunni og varð að segja sig úr landsliðshópnum. Hann hefur sett stefnuna á það að koma til baka eftir landsleikjahléið.

„Við skulum vona að tímabilið sé ekki í hættu. Þetta eru smá meiðsli sem ég er búinn að vera að eiga við í gegnum tíðina. Þetta kemur bara upp á vondum tíma," sagði Gunnleifur en hann er að glíma við meiðsli í baki.

„Ég hef lent í þessu áður og kann að vinna með þetta en ég var pínu óheppinn að þetta skuli hafa komið upp," sagði Gunnleifur.

„Það er ömurleg tímasetning á þessu að þurfa fara út af í stöðunni 0-1 í svona mikilvægum leik í deildinni. Svo missir maður landsleikina sem er hryllilegt," sagði Gunnleifur en FH fékk á sig þrjú mörk á stuttum tíma eftir að hann fór út af.

„Ég ætla að gera allt sem ég get og verð klár í KR-leikinn. Ég skal lofa þér því að ég verð klár í KR-leikinn 11. september," sagði Gunnleifur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×