Gummi Steinars.:Hjartað fékk að ráða för Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. október 2011 08:00 Keflvíkingar fagna því væntanlega mjög að halda sóknarmanninum Guðmundi Steinarssyni í sínum röðum.fréttablaðið/stefán
Keflvíkingar fengu góðar fréttir í gær þegar Guðmundur Steinarsson ákvað að framlengja samning sinn við Keflavík í eitt ár til viðbótar. Guðmundur hafði verið sterklega orðaður við önnur lið, svo sem Val og Breiðablik, en hann ákvað á endanum að halda sig við heimahagana. „Það má segja að það hafi tvennt ráðið úrslitum. Bæði var samningurinn góður og hjartað fékk að ráða för,“ sagði Guðmundur í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann segir að Keflvíkingar, hvort sem þeir voru tengdir félaginu eða honum persónulega, hefðu sett pressu á hann. „Maður fann fyrir því eftir því sem leið á dagana að það var mikill vilji til að halda mér í Keflavík. Ég komst svo að góðu samkomulagi við stjórn knattspyrnudeildarinnar og því var þetta niðurstaðan.“ Margir spennandi kostir á ÍslandiGuðmundur segir þó að vissulega hafi það freistað að leita nýrra áskorana. „Þetta voru vissulega ákveðin innri átök en nú verður tíminn að leiða í ljós hvort þetta hafi verið skynsamleg ákvörðun eða ekki. Ég skoðaði aðra kosti og voru þeir margir mjög spennandi enda mörg áhugaverð félög á Íslandi í dag. Ég ræddi við Valsmenn enda þekki ég þjálfarann Kristjánn Guðmundsson vel og veit að það er gott að vinna með honum. En heimaklúbburinn er manni alltaf kærastur.“ Talsverðar breytingar hafa legið í loftinu hjá Keflavík að undanförnu, en liðið var í fallhættu allt þar til í lokaumferð Pepsi-deildar karla í sumar. Ákveðið var að endurnýja ekki samning Willums Þórs Þórssonar þjálfara, sem er nú farinn í Leikni. Andri Steinn Birgisson fylgdi honum þangað og þá fór fyrirliðinn Haraldur Freyr Guðmundsson í atvinnumennskuna í Noregi í sumar. „Þessir tveir leikmenn eru farnir, sem og Svíinn Adam Larsson sem við vorum með í láni í sumar,“ sagði Guðmundur en bætti við að þrátt fyrir það yrði ekki farið að eltast við íslenska leikmenn á næstu vikum og mánuðum. „Fyrst og fremst verður lögð áhersla á að halda þeim leikmönnum sem eru fyrir hjá félaginu og sjá svo hverju það skilar. Ég tel síðan líklegt að það verði reynt að styrkja liðið með erlendum leikmönnum þegar nær dregur upphafi Íslandsmótsins,“ bætti Guðmundur við. Meðal þeirra leikmanna sem eru samningslausir er varnarmaðurinn Guðjón Árni Antoníusson, en hann er nú að íhuga að flytja sig um set til Reykjavíkur, þar sem hann ætlar sækja nám. „Ég á von á því að fram að vetri verðum við Jóhann Birnir [Guðmundsson] langelstu mennirnir í hópnum. Það er auðvitað alltaf mikið happadrætti að ætla að styrkja liðið með útlendingum skömmu fyrir mót en ég vona að menn hafi lært af reynslunni og finni nokkra öfluga stráka.“ Zoran Daníel Ljubicic er nýr þjálfari Keflavíkur og honum til aðstoðar verður Gunnar Oddsson. „Það var reynt að fá heimamenn til að taka þetta að sér og það var afar jákvætt að það tókst. Það eru vonandi spennandi tímar fram undan.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira