Keane enn sterklega orðaður við landsliðið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. september 2011 06:00 Til stóð að Roy Keane kæmi til Íslands í gær í fylgd með Eggerti Magnússyni en svo varð ekki. Fréttablaðið/HAG
Ekkert varð að því að Roy Keane kæmi til Íslands í gær eins og greint var frá snemma dags. Eggert Magnússon, fyrrum formaður KSÍ, kom til landsins ásamt eiginkonu sinni en þau höfðu boðið Keane og eiginkonu hans til Íslands. Knattspyrnusamband Íslands er nú að leita að nýjum landsliðsþjálfara og sagði Geir Þorsteinsson, formaður sambandsins, um helgina að nokkrir hefðu sýnt starfinu áhuga. Forráðamenn KSÍ vildu ekki staðfesta í gær að Roy Keane væri einn þeirra. Málið hefur fengið mikil og sterk viðbrögð í Írlandi, heimalandi Keanes, sem og í Bretlandi. Fréttablaðið setti sig í samband við fréttamann enska dagblaðsins Daily Mail, sem skrifaði um málið í gærmorgun. Heimildir blaðsins herma að Keane hafi átt í viðræðum við Knattspyrnusamband Íslands og að hann verði, þrátt fyrir allt, viðstaddur leik Íslands og Kýpur í dag. Eggert sagði að ekkert hefði verið rætt við Keane um að taka að sér starfið eins og fullyrt var á vefsíðu Daily Mail í gær. „Ég hef bara rætt við hann af því að hann er gamall vinur minn úr enska boltanum. Hann er mikill fjölskyldumaður og komst ekki frá henni að svo stöddu," sagði Eggert við Fréttablaðið í gær. Aðspurður fullyrti hann að Keane yrði ekki á leiknum í dag. Keane hefur verið atvinnulaus síðan í janúar síðastliðnum og fullyrða þeir fjölmiðlamenn á Írlandi sem Fréttablaðið ræddi við í gær að Keane komi til greina sem næsti landsliðsþjálfari Írlands, ákveði Giovanni Trapattoni að stíga til hliðar þegar núverandi samningur hans rennur út. Sá gildir fram yfir EM 2012. Mikil óvissa er um málið eins og er og vildu forráðamenn KSÍ ekkert um það segja hvort þeir hefðu sett sig í samband við Keane eða ekki. Keane er þó enn sterklega orðaður við landsliðið, þó svo að hann hafi ekki komið til landsins í gær.
Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira