Von óskast Petrína Ásgeirsdóttir skrifar 25. maí 2011 06:00 Það getur verið auðvelt að fallast hendur í starfi eins og mínu. Þegar tölurnar og staðreyndirnar eru svo yfirgengilegar að engin von virðist til þess að hægt sé að breyta stöðunni, grípa inn í, snúa taflinu við þannig að öll börn njóti mannréttinda í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem nær allar þjóðir heims hafa staðfest. Tölur á borð við þessar eru yfirþyrmandi: Á fjórðu hverju sekúndu deyr lítið barn í heiminum, barn sem við höfum alla burði til að bjarga. Í gagnabanka Interpol er ein milljón mynda af um 20 þúsund börnum sem eru sýnd á kynferðislegan hátt eða beitt kynferðislegu ofbeldi, við vitum aðeins til þess að 800 þeirra hafi fundist og fengið hjálp. Um 69 milljónir barna læra ekki að lesa, skrifa og reikna þó aðeins þyrfti sem nemur eyðslu heimsins í stríðsrekstur í sex daga til að öll þessi börn fengju að njóta réttinda sinna til grunnmenntunar. Á Íslandi er heimilisofbeldi daglegur kostur a.m.k. 2000 barna og alltof oft gleymist að taka tillit til sjónarmiða þeirra og hagsmuna í þeim erfiðu málum. Samkvæmt nýlegri rannsókn hefur rúmur fjórðungur barna hér á landi orðið fyrir kynferðisofbeldi eða kynferðisáreiti fyrir átján ára aldur. Síðustu tólf mánuði höfum við horft upp á hverjar náttúruhamfarirnar á fætur annarri víða um heim. Börn er gríðarlega berskjölduð í slíkum aðstæðum og þekkt eru dæmi þess að menn nýti sér glundroðann til að misnota börn og selja þau mansali. En þegar mesta áfallið er yfirstaðið, brettir maður upp ermarnar og hefst handa við að breyta stöðunni, grípa inn í, snúa taflinu við. Því vonina er líka að finna í tölunum. Á þriggja sekúndna fresti bjargar þjálfaður heilbrigðisstarfsmaður barni frá andláti með einföldum, ódýrum aðferðum sem virka. Á síðasta ári bárust ríflega 24 þúsund ábendingar á heimsvísu, um myndir á Netinu þar sem börn eru beitt kynferðislegu ofbeldi, í gegnum ábendingarlínur á borð við þá sem Barnaheill – Save the Children á Íslandi standa að. Á síðustu fjórum árum hefur börnum utan skóla fækkað úr 72 milljónum í 69 milljónir. Í kjölfar rannsóknar Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um félagsleg úrræði sem börnum, sem eru vitni að heimilisofbeldi, stendur til boða, hafa nokkrar stofnanir, sem sinna þeim málaflokki, ákveðið að taka verklag sitt til endurskoðunar. Með því að horfast í augu við þær afleiðingar sem kynferðislegt ofbeldi hefur á barn, getum við veitt öflugri stuðning og hjálp og unnið markvisst gegn slíku ofbeldi. Fumlaus viðbrögð þegar neyðarástand ríkir, þar sem verndun barna er sett í forgang, kemur í veg fyrir að hrikalegt ástand verði enn verra. Dagur barnsins á Íslandi er næstkomandi sunnudag. Vonin liggur í hverju barni og þar með í okkur öllum. Vertu heillavinur og hjálpaðu Barnaheillum – Save the Children með föstu mánaðarlegu framlagi að breyta stöðunni, grípa inn í, snúa taflinu við. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson Skoðun Halldór 27.12.2025 Halldór Skoðun Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar