Borgin hefur ráðin í hendi sér Snorri F.. Hilmarsson skrifar 16. maí 2011 09:30 Fréttablaðið hefur af gefnu tilefni fjallað um auð og eyðilögð hús í miðborginni að undanförnu. Eins og Hjálmar Sveinsson bendir réttilega á í blaðinu fyrir helgi var sameining lóða hluti af átaki sveitarstjórnarmanna í Reykjavík til að laða fjárfestingu að miðborginni, losa um hömlur í skipulagi og auka byggingarmagn, oft með óraunhæfum hætti. Árangur þessarar stefnu birtist í þessum niðurlægðu húsum og er sýnilega á kostnað miðborgarinnar og þess sögulega umhverfis sem hún þrífst á. Flest eiga umrædd hús það sammerkt að vera hluti af slíkum spákaupum með mögulegar risalóðir. Sameining lóða hefur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir miðborgina. Hún vinnur gegn þeim fjölbreytileika og smáa kvarða sem er styrkur byggðarinnar og tryggir henni líf og endurnýjun. Svona þarf þetta ekki að vera. Um það bera svo mörg ágæt dæmi úr miðborginni skýrt vitni. Laugavegur 46 gengur nú í endurnýjun lífdaga. Sama hefur Þingholtsstræti 2 á horni Bankastrætis gert en einnig Laugavegur 2, 11, 21 og 56, á Bergstaðastræti, Klapparstíg, Lindargötu, Þingholtsstræti og listinn er lengri. Þetta er allt óeigingjarnt og rausnarlegt framlag einstaklinga, fjölskyldna og fyrirtækja til borgarinnar og allra sem hana byggja. Þar sem ekki er leyfð óheft beit sprettur blómgróður. Það er því eðlilegt að borgaryfirvöld sjálf leggi gott til eins og gert hefur verið með svo miklum ágætum með uppbyggingunni í Aðalstræti, við Laugaveg og endurreisn húsanna við Lækjartorg. Hins vegar á ekki að þurfa bruna til að gera góða hluti í gamla bænum, það má líka taka til þar sem skipulagið hefur lent í blindgötu. Flest þessara húsa sem nú stinga í augu í niðurlægingu sinni gætu sem hægast orðið hin mesta staðarprýði fengju þau tækifæri til þess. Borgarstjórn hefur undir höndum öll þau verkfæri sem þarf til að snúa taflinu við. Verndun er því aðeins annað form uppbyggingar eins og dæmin sanna og er ekki til annars fallin en að auka gæði byggðarinnar. Verndun er líklegri til að koma betra jafnvægi á byggðina og gera hana að vettvangi betra mannlífs en stefnan um sameiningu lóða hefur hingað til leitt af sér. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Fréttablaðið hefur af gefnu tilefni fjallað um auð og eyðilögð hús í miðborginni að undanförnu. Eins og Hjálmar Sveinsson bendir réttilega á í blaðinu fyrir helgi var sameining lóða hluti af átaki sveitarstjórnarmanna í Reykjavík til að laða fjárfestingu að miðborginni, losa um hömlur í skipulagi og auka byggingarmagn, oft með óraunhæfum hætti. Árangur þessarar stefnu birtist í þessum niðurlægðu húsum og er sýnilega á kostnað miðborgarinnar og þess sögulega umhverfis sem hún þrífst á. Flest eiga umrædd hús það sammerkt að vera hluti af slíkum spákaupum með mögulegar risalóðir. Sameining lóða hefur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar fyrir miðborgina. Hún vinnur gegn þeim fjölbreytileika og smáa kvarða sem er styrkur byggðarinnar og tryggir henni líf og endurnýjun. Svona þarf þetta ekki að vera. Um það bera svo mörg ágæt dæmi úr miðborginni skýrt vitni. Laugavegur 46 gengur nú í endurnýjun lífdaga. Sama hefur Þingholtsstræti 2 á horni Bankastrætis gert en einnig Laugavegur 2, 11, 21 og 56, á Bergstaðastræti, Klapparstíg, Lindargötu, Þingholtsstræti og listinn er lengri. Þetta er allt óeigingjarnt og rausnarlegt framlag einstaklinga, fjölskyldna og fyrirtækja til borgarinnar og allra sem hana byggja. Þar sem ekki er leyfð óheft beit sprettur blómgróður. Það er því eðlilegt að borgaryfirvöld sjálf leggi gott til eins og gert hefur verið með svo miklum ágætum með uppbyggingunni í Aðalstræti, við Laugaveg og endurreisn húsanna við Lækjartorg. Hins vegar á ekki að þurfa bruna til að gera góða hluti í gamla bænum, það má líka taka til þar sem skipulagið hefur lent í blindgötu. Flest þessara húsa sem nú stinga í augu í niðurlægingu sinni gætu sem hægast orðið hin mesta staðarprýði fengju þau tækifæri til þess. Borgarstjórn hefur undir höndum öll þau verkfæri sem þarf til að snúa taflinu við. Verndun er því aðeins annað form uppbyggingar eins og dæmin sanna og er ekki til annars fallin en að auka gæði byggðarinnar. Verndun er líklegri til að koma betra jafnvægi á byggðina og gera hana að vettvangi betra mannlífs en stefnan um sameiningu lóða hefur hingað til leitt af sér.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun